Innlent

Farþegar fluttir á slysadeild

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sólin skein úr suðri og var lágt á lofti þegar áreksturinn varð.
Sólin skein úr suðri og var lágt á lofti þegar áreksturinn varð. Vísir/Stefán
Harkalegur árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar um tvöleytið í dag. Tveir bílar sem ekið var úr gagnstæðri átt rákust saman.

Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang auk þess sem lögregla mætti á svæðið. Nokkrir voru fluttir á slysadeild en engar upplýsingar er að fá að svo stöddu um líðan farþeganna.

Vísir/STefán



Fleiri fréttir

Sjá meira


×