Matur

Fantagóð frosin jógúrt - UPPSKRIFTIR

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Þessar uppskriftir er auðvelt að gera heima fyrir og þarf engin sérstök tól og tæki til eins og ísvél.

Frosin granateplajógúrt

Frosin jógúrt



2 bollar grísk jógúrt

4 msk. hunang



Granateplasnúningur



2 bollar granateplafræ

4 msk. hunang

2 msk. sítrónusafi

½ msk. maizena-mjöl



Setjið granateplafræ í matvinnsluvél og myljið í smástund. Setjið fræin, hunang, sítrónusafa og maizena-mjöl í pott og hitið yfir lágum hita þangað til sýður. Leyfið að sjóða í nokkrar mínútur. Takið af eldavélinni og leyfið að kólna í smástund. Hellið blöndunni í gegnum sigti til að losna við fræin. Setjið sósuna í ísskáp þangað til hún er köld.

Blandið hunangi við grísku jógúrtina. Frystið í um einn til tvo tíma. Takið úr frystinum og hrærið með gaffli. Setjið aftur inn í frysti þangað til blandan er nánast gaddfreðin. Setjið blönduna í matvinnsluvél og blandið vel. Hellið granateplasósunni ofan á og blandið með gaffli. Setjið í frysti eða berið fram strax.

Fengið hér.



frosin jógúrt uppskriftir

Jarðarberjajógúrt

Safi úr einu súraldini

2 msk. vodka

6 msk. hunang

6 bollar frosin jarðarber

2/3 bollar grísk jógúrt



Blandið öllum hráefnum saman í matvinnsluvél í um fimm mínútur. Berið fram strax eða setjið í frysti.

Fengið hér.



frosin jógúrt uppskriftir

Karamellusósa

240 g sykur

80 g bráðið smjör

200 ml rjómi



Bræðið sykurinn yfir lágum hita þangað til hann fær karamellulit. Hrærið smjörinu og rjómanum hratt og vel saman við. Takið af hitanum og leyfið að kólna við stofuhita.

Fengið hér.



frosin jógúrt uppskriftir

Mangójógúrt m. pistasíukurli

Frosin jógúrt



2 bollar frosið mangó

½ bolli jógúrt

1 msk. hunang

¼ tsk. kardimommur



Pistasíukurl



2 msk. saxaðar pistasíuhnetur

2 msk. saxaðar möndlur

1 msk. kókossykur

1/8 tsk. kardimommur

1/2 tsk. kókosolía



Blandið öllum hráefnum í kurlið saman í skál og blandið saman með höndunum þannig að kókosolían þeki allt. Blandið öllum hráefnum í jógúrtina saman í matvinnsluvél í um þrjár mínútur. Berið fram strax með kurlinu ofan á eða frystið.

Fengið hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×