Fótbolti

Fanndís lék tæpan klukkutíma í sigri Arna-Bjørnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fanndís í baráttunni með íslenska landsliðinu
Fanndís í baráttunni með íslenska landsliðinu KSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Arna-Bjørnar bar í dag sigurorð af Trondheims-Ørn í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í kvennaflokki.

Landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir var í byrjunarliði Arna-Bjørnar, en var skipt af leikvelli á 59. mínútu, tveimur mínútum eftir að Lisa Fjeldstad Naalsund skoraði eina mark leiksins.

Fanndís er á sínu fyrsta tímabili hjá Arna-Bjørnar, en hún lék með Kolbotn í norsku úrvalsdeildinni í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×