Leikjavísir

Fallout 4 staðfestur

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Bethesda
Bethesda Softworks birtu í gær nýja stiklu fyrir leikinn Fallout 4. Leikurinn mun gerast í kringum Boston í Bandaríkjunum og í stiklunni má sjá hvernig maður stígur út úr hvelfingu 111 og virðist hann ferðast um rústir Boston með hundi sínum.

Fjölmargir hafa beðið eftir þessum leik en frekar verður sýnt frá honum á E3 þann 14. júní. Stiklunni fylgir þó að leikurinn verði gefinn út fyrir PC, PS4 og Xbox One.

Frekari upplýsingar um leikinn má sjá hér á heimasíðu hans.

Mynd/Bethesda
Mynd/Bethesda





Fleiri fréttir

Sjá meira


×