Lífið

Fallegt 400 fermetra einbýlishús eftir Kjartan Sveinsson til sölu á 140 milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega smekklegt hús.
Virkilega smekklegt hús.
Borg Fasteignasala er með á söluskrá fallegt og glæsilegt einbýlishús í Laugardalnum hannað af Kjartani Sveinssyni. Húsið er á Laugarásveginum. 

Eignin er samtals 422 fermetrar og skiptist í íbúðarhluta á tveimur hæðum  og rúmlega 31 fermetra bílskúr. Húsið er einstaklega vel hannað hvað varðar skipulag og glæsileika en vítt er til veggja og hátt til lofts sem tryggir að sérsmíðaðar innréttingar, hurðir og gluggar njóta sín til fulls.

Á efri hæðinni er komið er inn í  stóra forstofu með granít flísum góðum skápum Gestasnyrting er inn af forstofu. Stofur á efri hæð eru glæsilegar og rúmgóðar stofur með góðri lofthæð og gluggum með útsýni yfir Laugardalinn. Út úr stofu er gengið út á rúmgóðar, flísalagðar svalir mót suðri.

Eldhús er með eldri viðarinnréttingu, góðu skápaplássi og vinnurými, borðkrók með út-skots glugga og búri inn af. Á neðri hæð er komið í opið rými þar sem er fallegur bar og sjónvarps- og koníaksstofa með innfelldum hillum. Baðherbergi með góðum sturtuklefa er innréttað til hliðar við barinn.

Hjónaherbergi er með fataherbergi og baðherbergi inn af, öll rými með gluggum með opnanlegu fagi inn af. Neðri hæðinni hefur að geyma þrjú svefnherbergi, baðherbergi, forstofa með sér inngang meðfram austurhlið, þvottahúsi og geymslu.

Um er að ræða einstaklega fallegt hús sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina, þak yfirfarið, gluggar og gler yfirfarið, nýlegt gler í allri norðurhliðinni, áður búið að skipta um mót suðri. Húsið stendur hátt í Laugardalnum með útsýni af efri hæð og skjólgóðan garð á neðri hæð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×