Fá ekki fólk til að semja frumvarp um staðgöngu 19. júlí 2012 08:00
Starfshópur sem á að undirbúa frumvarp um að heimila staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni hefur ekki enn verið skipaður þrátt fyrir að þingsályktunartillaga um málið hafi verið samþykkt í janúar. Tillagan fól velferðarráðherra að skipa starfshóp um málið og leggja fram frumvarp „svo fljótt sem verða má". Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur reynst erfitt að fá fólk til þess að taka sæti í starfshópnum, en unnið hefur verið að skipun hans í talsverðan tíma. Reynt hefur verið að finna óháða sérfræðinga í hópinn. Gert er ráð fyrir því að hann eigi nokkuð erfitt verk fyrir höndum við að skrifa frumvarp, enda málið bæði umdeilt og viðkvæmt. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segist vona að skipun hópsins geti lokið á næstu dögum eða vikum. Búið er að skipa formann hópsins. Hann segir málið í raun fela í sér tvö ólík verkefni, annars vegar að fara í gegnum álitamál tengd staðgöngumæðrun og hins vegar að semja frumvarpið. „Það er það sem hefur tafið okkur, að finna út hvernig á að gera þetta svo þetta verði ekki hópur sem er að togast á um hlutina heldur leitar bestu lausna." Gert er ráð fyrir því í velferðarráðuneytinu að frumvarp um málið verði lagt fram á næsta þingi. Guðbjartur segir að stefnt sé að því en það muni þó verða að ráðast af vinnunni í hópnum. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar. Hún segist orðin mjög óþreyjufull eftir því að lokið verði við skipun hópsins. „Þetta fer að verða meðgöngutími, þetta var fyrsta málið sem var klárað á þingi eftir áramót. Þessari nefnd var falið að skrifa frumvarp og það átti að gefa henni nægan tíma, en mér finnst vera búið að sóa tímanum í hálft ár," segir hún. „Það mun taka tíma að gera þetta vel og því finnst mér mikilvægt að menn fari að koma sér að verki."- þeb
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira