Tónlist

Diskókvöld Klúbbsins

Næstkomandi laugardagskvöld verður spariútgáfa af Diskó-kvöldi Klúbbsins við Gullinbrú. Dúettinn DJ Boy and The George mun hrista eðal diskó fram úr skálmum sínum. Sérstakir gestir eru Love Guru Allstars, Daníel Óliver, Skjöldur Eyfjörð, Capone (uppistand) og fleiri.

Tónlist

Endursköpun Bítlanna

Ný og endurhljóðblönduð plata Bítlanna, Love, kom út fyrir stuttu, fjölmörgum aðdáendum þeirra til mikillar ánægju. George Martin, sem var upptökustjóri sveitarinnar, og sonur hans Giles þykja hafa unnið stórvirki með útgáfunni.

Tónlist

Mannakorn með jóladisk

Í tilefni af útkomu disksins JÓL MEÐ MANNAKORNUM efnir Sögur útgáfa til tónleika í nokkrum kirkjum víðsvegar um landið. Fyrstu tónleikarnir verða haldnir í Seltjarnarneskirkju 23.nóvember kl. 20.00. Miðaverð á tónleikana er kr. 2.500.

Tónlist

Ég verð heima um jólin

Geisladiskurinn Ég verð heima um jólin með Kvartett Kristjönu Stefáns er kominn út í nýrri útgáfu, en hann kom fyrst út fyrir áratug og seldist þá fljótlega upp.

Tónlist

Vill gera sólóplötu

Justin Hawkins, fyrrverandi söngvari bresku hljómsveitarinnar The Darkness, ætlar að hefja vinnu við sína fyrstu sólóplötu á næstunni. „Ég ætla að taka mér gott frí og gera hluti sem ég hef gaman af eins og að fara á skauta. Síðan ætla ég að byrja á sólóplötu," sagði hann. Hawkins er nýkominn úr meðferð vegna áfengis- og eiturlyfjanotkunar og ætlar að láta að sér kveða í tónlistarbransanum á nýjan leik.

Tónlist

Megasukk í Köben

Hljómsveitin Megasukk, sem er skipuð Megasi og Súkkati, heldur tónleika á Atlantshafsbryggjunni í Kaupmannahöfn laugardaginn 25. nóvember. Fetar Megasukk þar með í fótspor rokksveitarinnar Ham sem spilaði þar fyrir nokkrum vikum.

Tónlist

Bæði nakin í nýju tónlistarmyndbandi

Peter André og Katie Price, eða Jordan, hafa nú gefið út myndband við lag sitt. Parið er eitt af vinsælustu pörum í Bretlandi enda skrautlegir karakterar. Lagið Lagið A Whole New World með skötuhjúunum er frumraun þeirra saman á tónlistarsviðinu en André gaf út nokkrar smáskífur á árum áður.

Tónlist

Eivör með dívunum

Eivør Pálsdóttir hefur bæst í hópinn með þeim Sissel Kyrkjebø og Petulu Clark sem syngja á jólatónleikunum Frostroses: European Divas í Laugardalshöll 5. desember. Miðasala á tónleikana er hafin en hún fer fram á vefsíðu Frost, www.frostid.is, midi.is, verslunum Skífunnar og verslunum BT á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.

Tónlist

Aftur í Höllinni

Sálin hans Jóns míns og Gospelkór Reykjavíkur munu halda aðra tónleika í Laugardalshöll þann 30. desember næstkomandi vegna gífurlegrar eftirspurnar.

Tónlist

Joanna í Undralandi

Það er erfitt að lýsa nýjasta hljóðævintýri Joannu Newsom með orðum. Einhvern tímann frá því að hún gaf út síðustu plötu fyrir tveimur árum síðan hefur hún elt hvítu kaninuna ofan í holuna á trénu sem leiddi Lísu til undralands og komið sér vel fyrir þar.

Tónlist

Magnaðir Molar

Það ríkti mikil eftirvænting í Laugardalshöllinni á föstudagskvöldið. Höllin var vel full og útlendingar áberandi í salnum. Sennilega hafa aldrei fleiri komið til landsins gagngert til þess að fara á tónleika.

Tónlist

Syngja lög eftir konur

Platan Sögur af konum er komin út. Þar syngja þær Selma og Hansa tólf ný lög eftir íslenskar konur. Selmu og Hönsu langaði til að gera tónlistarkonum á Íslandi hátt undir höfði á þessari plötu og völdu því eingöngu lög og texta eftir konur.

Tónlist

Söng með Pearl Jam

Bono, söngvari U2, og rokksveitin Pearl Jam komu óvænt fram saman á tónleikum í Ástralíu sem báru yfirskriftina „Make Poverty History“. Sungu þeir félagar Bono og Eddie Vedder lag Neil Young, Rockin in the Free World.

Tónlist

Tónað inn í aðventu á Melum

Kirkjur landsins eru í vaxandi mæli teknar að vera skjól listafólki vikurnar fyrir aðventu og á aðventunni sjálfri, rétt eins og listasamfélagið vilji eyða svartasta myrkrinu fyrir skemmstan dag. Þannig verður átak í Neskirkju vestur á Melum og hefst í dag. Tónlistarhátíð Neskirkju „Tónað inn í aðventu“ er nú haldin í þriðja sinn.

Tónlist

Gefa út DVD

Rokksveitin Guns "N" Roses gefur hinn 5. febrúar á næsta ári út DVD-mynddiskinn Live in Chic-ago. Á disknum verða meðal annars lögin Mr. Brownstone, Live and Let Die, Patience, Civil War, Welcome to the Jungle og November Rain sem hljómsveitin flutti á tónleikum í Chicago.

Tónlist

Á lag í bandarískum kántrí-raunveruleikaþætti

Gísli Jóhannsson, betur þekktur sem Gis, hefur loksins látið gamlan draum rætast og komið sér fyrir í mekka kantrí-tónlistarinnar, Nashville. „Hérna er nú bara rok og rigning,“ segir Gísli þegar Fréttablaðið hafði samband við hann.

Tónlist

Ampop siglir til tunglsins

Hljómsveitin Ampop gefur út sína fjórðu plötu, Sail to the Moon, á þriðjudag. Platan fylgir eftir vinsældum My Delusions sem kom út seint á síðasta ári.

Tónlist

Einfalt og hrífandi gospel

Páll Óskar Hjálmtýsson, Eiríkur Hauksson og Margrét Eir syngja saman gospelsálma á nýrri plötu frá útgáfufyrirtækinu Frost sem nefnist Horfðu til himins.

Tónlist

Brjálað stuð á Basshunter á Broadway

Í vikunni var haldið ball fyrir grunn- og framhaldsskólanema á Broadway af útvarpsstöðinni Flass 104,5. Hápunktur kvöldsins var þegar plötusnúðurinn Basshunter steig á svið ásamt dönsurum. Basshunter hefur gert allt vitlaust í Evrópu með lögunum Boten Anna og Vi sitter i ventrilo och spelar Dota.

Tónlist

Stones á toppnum

Tónleikaferð rokkhundanna í The Rolling Stones, Bigger Bang, hefur verið valin tónleikaferð ársins af bandaríska tónlistartímaritinu Billboard. Byggðist valið á aðsóknartölum og því hversu mikið tónleikaferðin þénaði.

Tónlist

Uppgjörsplata Ívars

Fyrsta plata Ívars Bjarklind, Blóm eru smá, er komin út. Á persónlegan hátt gerir Ívar þar upp líf sitt með fallegum lagasmíðum og innihaldsríkum textum.

Tónlist

Útgáfutónleikar Lay Low

Nú er komið að útgáfutónleikum plötunnar "Please Don´t Hate Me" og fara þeir fram miðvikudagskveldið 29. nóvember n.k. í Fríkirkjunni í Reykjavík. Forsala hefst laugardaginn 18. nóvember kl. 12:00 í verslunum Skífunnar og á www.midi.is

Tónlist

Bó á vinsældalista í Þýskalandi

„Nei nei, og þó …jú," svarar Björgvin Halldórsson stórsöngvari spurður út í fréttir þess efnis að lagið Eina ósk í hans flutningi sé að slá í gegn í Þýskalandi um þessar mundir.

Tónlist

Queen hefur selt mest allra

Hljómsveitin Queen á mest seldu plötu allra tíma í Bretlandi, safnplötuna Greatest Hits sem kom út árið 1981. Alls hefur platan selst í rúmlega 5,4 milljónum eintaka þar í landi.

Tónlist

Justin hjálpar Duran

Söngvarinn Justin Timberlake þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af nýjustu plötu sinni „Futuresex/lovesounds" en hún selst í bílförmum þessa dagana.

Tónlist

Miðasala í Laugardalshöll í dag

Enn eru til miðar á 20 ára afmælistónleika Sykurmolanna í kvöld, föstudagskvöldið 17. nóvember, í Laugardalshöll. Miðasala fer fram í verslunum Skífunnar Kringlunni og Smáralind, BT Akureyri, Selfossi og Egilstöðum og á Midi.is.

Tónlist

Jólatónleikar Fíladelfíu

Jólatónleikar Fíladelfíu verða haldnir í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, 5. og 6. desember kl. 20 og kl. 22, bæði kvöldin. Flytjendur eru Gospelkór Fíladelfíu undir stjórn Óskars Einarssonar, Björgvin Halldórsson, Hera Björk, Maríanna Másdóttir, Þóra Gréta Þórisdóttir og Edgar Smári ásamt fjölda annarra einsöngvara.

Tónlist

Í bolla hafið bjarta

Þeir sem eitt sinn voru unglingastjörnur geta átt í miklum erfiðleikum með að höndla lífið og ná jarðsambandi á ný. Breti af grískum ættum valdi sér á sjöunda áratugnum listmannasnafnið Cat Stevens og náði sem slíkur miklum vinsældum, kom fótum undir plötufyrirtækið Island, var umvafinn fögrum konum og mikilli velsæld en koksaði á öllu á frægum konsert í Aþenu og gekk af sviðinu.

Tónlist