Golf

Birgir Leifur í 44. sæti eftir fyrsta hring

Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék fyrsta hringinn á Opna BA CA mótinu í Austurríki á 70 höggum eða einu höggi undir pari. Mótið er haldið í Vínarborg og er liður í Evrópumótaröðinni. Birgir er því í 44. sæti á mótinu en það er enski kylfingurinn Graeme Storm sem er í fyrsta sætinu eftir að hann lék fyrsta hringinn á 63 höggum eða 8 undir pari.

Golf

16 kylfingar hafa farið holu í höggi í ár

Þótt ekki sé langt liðið á golfvertíðina 2007 eru þegar komnar til skrifstofu GSÍ 16 tilkynningar um holu í höggi. Einhverjir fleiri en þeir sem eru á listanum hér fyrir neðan hafa náð draumahögginu í ár, en ekki tilkynnt það á réttu eyðublaði til GSÍ. Á meðan að svo er, þá er afrekið ekki viðurkennt af Einherjaklúbbnum.

Golf

Alfreð, Ottó og Sigmundur deila efsta sæti

Alfreð Brynjar Kristinsson úr GR og þeir Ottó Sigurðsson og Sigmundur Einar Másson úr GKG deila efsta sæti eftir fyrsta hring af þremur á 2. stigamótinu á Kaupþings mótaröðinni sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli. Þeir léku allir á 74 höggum, eða 2 höggum yfir pari. Mjög hvasst var í dag og þá gekk á með skúrum fyrir hádegi.

Golf

Birgir Leifur úr leik

Birgir Leifur komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna velska Meistaramótinu í dag. Hann náði sér ekki strik og endaði á átta höggum yfir pari. Hann lauk hringnum á 73 höggum.

Golf

Birgir Leifur á einu höggi yfir pari

Birgir Leifur hefur lokið 9 holum af 18 á öðrum keppnisdegi á Opna velska Meistaramótinu í dag. Hann fór þessar 9 holur á einu höggi yfir pari og því samtals á 5 höggum yfir pari.

Golf

Birgir Leifur ósáttur við fyrsta hringinn

Birgir Leifur Hafþórsson var ekki sáttur við spilamennsku sína á fyrsta hringnum á opna velska mótinu í dag þar sem hann lauk leik á 73 höggum eða fjórum yfir pari. Í samtali við Kylfing.is sagði Birgir að hann hefði verið að missa of mörg stutt pútt og það hefði kostað sig dýrt.

Golf

Birgir Leifur á fjórum höggum yfir pari

Birgir Leifur lauk fyrsta degi sínum á opna welska meistaramótinu á fjórum höggum yfir pari en mótið fer fram á The Celtic Manor vellinum. Birgir Leifur fékk 5 skolla og einn fugl.

Golf

Anders Hansen sigraði á BMW mótinu

Englendingurinn Justin Rose og Daninn Anders Hansen urðu efstir og jafnir á BMW PGA meistaramótinu sem fram fór um helgina á Wentworth-vellinum í Surrey á Englandi. Þeir Rose og Hansen léku hringina fjóra á 8 höggum undir pari, einu höggi færra en Vijay Singh og Richard Sterne sem deildu 3.-4. sæti.

Golf

Stefán Már og Sigmundur í hópi efstu manna í Austurríki

Stefán Már Stefánsson, kylfingur úr GR, lék frábærlega á Opna austurríska áhugamannamótinu í golfi í dag en hann lék hringinn á 68 höggum, fjórum höggum undir pari. Eftir því sem fram kemur á vefnum kylfingur.is er Stefán á einu höggi undir pari líkt og Sigmundur Einar Másson úr GKG sem á titil að verja á mótinu.

Golf

Sigurpáll lék vel í Lundi

Sigurpáll Geir Sveinsson, kyflingur úr Kili, spilaði lokahringinn á Gambro-mótinu í Lundi í Svíþjóð á 67 höggum, eða þremur höggum undir pari. Lék hann hringina þrjá á 210 höggum eða pari og hafnaði í 12. sæti og fékk 73 þúsund krónur í verðlaunafé.

Golf

Kaupþingsmótaröðin að hefjast

Golfssamband Íslands hefur skrifað undir samning við Kaupþing banka vegna íslensku mótaraðarinnar í golfi og mun Íslandsmótið ganga undir nafninu, Kaupþingsmótaröðin. Fyrsta mót sumarsins fer fram á Garðavelli við Akranes og hefst á laugardaginn en 123 keppendur eru skráðir til leiks.

Golf

Phil Mickelson sigraði á Players

Phil Mickelson fór með sigur af hólmi á Players meistaramótinu. Eftir glæsilegan lokahring endaði hann á 11 undir pari. Hlaut hann að launum 103 milljónir íslenskra króna.

Golf

Birgir komst í gegnum niðurskurðinn

Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að gera það gott á Evrópumótaröðinni en í gær komst hann í gegnum niðurskurð á móti sem fram fer á Spáni. Birgir Leifur lék á fjórum höggum undir pari í gær og er samtals á þrem höggum undir pari. Það setur hann í 30. sæti mótsins ásamt nokkrum öðrum kylfingum.

Golf

Tiger langt frá sínu besta á Players

Besti kylfingur heims, Tiger Woods, var langt frá sínu besta á fyrsta hringnum á Players-meistaramótinu í golfi. Woods lék á 3 höggum yfir pari og er í 58.-74. sæti. Bein útsending verður á Sýn annað kvöld og á sunnudagskvöld.

Golf

Birgir Leifur á höggi yfir pari

Birgir Leifur Hafþórsson lék fyrsta hringinn á Opna Andalúsíumótinu á Spáni í dag á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari. Hann lék fyrri níu á 37 höggum og seinni níu á 36 höggum. Hann fékk 3 fugla á hringnum, 12 pör, 2 skolla og einn skramba, sem kom á 7. braut. Hann er sem stendur í 81. - 94. sæti, en margir keppendur eiga eftir að ljúka leik í dag.

Golf

57. sigur Tiger Woods á PGA

Það eru ekki mörg mót á PGA-mótaröðinni sem Tiger Woods hefur ekki unnið. Þeim fækkaði enn í kvöld þegar hann sigraði í fyrsta sinn á Wachovia Meistaramótinu í Norður-Karólínu. Þetta var jafnframt 57. sigur hans á PGA-mótaröðinni. Þetta var sjötta mótið sem hann tekur þátt í á þessu ári og hefur hann komist í gegnum niðurskurðinn í þeim öllum og sigrað í þremur.

Golf

Birgir Leifur upp um 52 sæti á peningalistanum

Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castano sigraði á Opna ítalska mótinu í dag eftir bráðabana við Markus Brier frá Austurríki. Þeir léku báðir þrjá hringi á 16 höggum undir pari. Þeir léku 18. brautina tvisvar og í síðara skiptið hafði Castano betur og fékk um 25 milljónir króna í verðlaunafé fyrir fyrsta sætið. Brier fór heim með 16 milljónir.

Golf

Besti árangur Birgis Leifs á ferlinum

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék lokahringinn á Opna ítalska mótinu í Mílanó í dag á 69 höggum, eða 3 höggum undir pari. Hann lék hringina þrjá á samtals 13 höggum undir pari og er í 11. sæti og er ljóst að þetta er besti árangur hans á ferlinum og um leið besti árangur Íslendings á alþjóðlegu golfmóti. Hann fékk skolla á lokaholunni, sem kostaði hann nokkur þúsund evrur.

Golf

Birgir Leifur í beinni á Sýn á morgun

Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá lokadegi opna ítalska mótsins í golfi upp úr klukkan 12 á morgun og þar gefst áhorfendum tækifæri til að fylgjast með Birgi Leifi Hafþórssyni keppa á Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur hefur verið í miklu stuði á mótinu og er sem stendur í 7-12 sæti.

Golf

Birgir Leifur: Spennustigið verður hátt

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, er í 7.-12. sæti fyrir lokahringinn á Opna ítalska mótinu sem fram fer á morgun. Hann verður væntanlega í þriðja síðasta holli og fer þá út um klukkan níu að íslenskum tíma. Hann lék á 67 höggum, eða 5 höggum undir pari, í dag eins og fyrsta hringinn á fimmtudag. Birgir er því samtals á 10 höggum undir pari og er aðeins fjórum höggum frá toppsætinu.

Golf

Kláraði bara fimm holur

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur í GKG, náði bara að klára fimm holur á öðrum hring á opna Ítalíumótinu í golfi í Mílanó í gær.

Golf

Frábær fyrsti hringur hjá Birgi Leifi

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG byrjar einstaklega vel opna Telecom mótinu í golfi sem fram fer á Ítalíu. Birgir lauk hringnum á 67 höggum í dag eða fimm höggum undir pari. Hann er í 14. sæti í mótinu en sænski kylfingurinn Joakim Backström er í efsta sæti mótsins á tíu höggum undir pari.

Golf

Tiger og Michael Jordan saman í liði

Tveir af frægustu íþróttamönnum sögunnar, körfuboltamaðurinn Michael Jordan og Tiger Woods, eru saman í liði í Pro/Am móti sem fram fer á Quail Hollow vellinum í Norður-Karólínu í dag.

Golf

Verplank sigraði á Byron Nelson mótinu

Bandaríkjamaðurinn Scott Verplank sigraði á Byron Nelson PGA-mótinu, sem lauk í Dallas í Texas í kvöld. Hann lék lokahringinn á 66 höggum og hringina fjóra á samtals 267 höggum, eða 13 höggum undir pari.

Golf

Scwartzel sigraði á opna spænska

Suður-afríski kylfingurinn Charl Schwartzel sigraði á Opna spænska mótinu sem lauk í Madríd í dag og var þetta annar sigur hans á Evrópumótaröðinni. Hann lék lokahringinn á 67 höggum og var samtals á 16 höggum undir pari, einu höggi á undan Indverjanum Jyoti Randhawa, sem varð annar. Heimamaðurinn Carlos Rodiles varð þriðji á samtals 14 höggum undir pari.

Golf

Birgir Leifur mætir Ronaldo á Pro-Am mótinu

Brasilíski knattspyrnukappinn Ronaldo, sem leikur með AC Milan á Ítalíu og Roberto Donadoni, landsliðsþjálfari Ítala í knattspyrnu, verða meðal keppenda á Pro-Am móti sem fram fer á miðvikudaginn. Birgir Leifur Hafþórsson verður meðal keppenda í Telecom mótinu, sem er hluti af evrópsku mótaröðinni.

Golf

Slæmur endasprettur hjá Heiðari

Heiðar Davíð Bragason úr Kili í Mosfellsbæ lék lokahringinn á Welness mótinu í Danmörku í dag á 77 höggum, eða 5 höggum yfir pari. Hann byrjaði vel og eftir 13 holur var hann á 2 höggum undir pari, en lék síðustu fimm holurnar á 7 höggum yfir pari. Hann lék hringina þrjá á samtals 222 höggum, eða 6 höggum yfir pari. Heiðar Davíð hafnaði í 31.-34. sæti í mótinu.

Golf