Veiði

Góð opnun í Blöndu

Blanda endaði með 8 löxum lönduðum á opnunardeginum í gær. Á seinni vaktinni var 2 löxum landað og einnig misstu veiðimenn 2 til viðbótar, sem fyrr voru laxarnir á milli 10 og 14 pund. Af þessum 8 voru fjórir teknir á maðkinn og hinir fjórir á fluguna.

Veiði

Lokadagur Veiðimessu hjá Veiðiflugum í dag

Í dag er síðasti dagur Veiðimessu hjá Veiðiflugum á Langholtsvegi 111. Það hefur verið mikil umferð af fólki í búðina í dag að sögn Hilla enda dagskráin þétt af kynningum fyrir veiðimenn. Guideline línurnar hafa til dæmis verið á tilboði með 20% afsætti í allann dag og Tommi Za, sem tók 23 punda urriða í Þingvallavatni um daginn gefur mönnum góð ráð við val á flugum fyrir vötnin í sumar. Boðið verður uppá grillaðar pylsur í dag og krakkarnir fá Svala með. Veiðimessan stendur yfir til klukkan 17:00 í dag.

Veiði

Fyrstu laxarnir komnir á land

Fyrsti laxinn er kominn úr Norðurá. Það var Ásmundur Helgason, stjórnarmaður í Stangveiðifélagi Reykjavíkur sem veiddi fyrsta laxinn á Stokkhylsbrotinu og það var 84 sentimetra löng nýgengin hrygna, líklega um 13-15 pund.

Veiði

Norðurá opnar í fyrramálið

Á sunnudagsmorgun á slaginu 7:00 mun formaður SVFR, Bjarni Júlíusson, taka fyrstu köstin á Brotið.Stjórnarmenn fóru í leiðangur meðfram ánni í dag og sáu laxa bæði á Brotinu og á Stokkhylsbroti. Það var mat manna að Eyrin væri í afbragðsvatni og þó ekki hafi sést fiskur þar, þá telja stjórnarmenn að hún sé smekkfull af laxi.

Veiði

Boltar í Baugstaðarós

Það er sjaldan að fréttir berast úr Volanum eða úr Baugstaðaósi. Það þarf alls ekki að þýða að þar sé slök veiði, frekar að menn vilji ekki láta allt of mikið bera á svæðinu!

Veiði

Hítará áfram hjá SVFR

Hítará hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá félagsmönnum, enda umhverfi árinnar stórfenglegt, sérlega fallegir veiðistaðir og gamla veiðihús Jóhannesar á Borg, Lundur, á sér engan líka.Veiðin hefur verið mjög góð síðastliðin ár og vonir standa til að göngur í ánna verði með besta móti í sumar. Vatnsmiðlunin í Hítarvatni hefur verið virkjuð að hluta, þannig að ef til mikilla þurka kemur í sumar, þá verður smávegis forði þar til hjálpar. Reyndar segir "Sigga á Brúarfossi“ að öll vortungl hafi kveiknað í vestri og það veit á rigningarsumar á Mýrunum og jafnvel líkur á að það rigni upp í Norðurárdal.

Veiði

Veiðifréttaleikurinn heldur áfram í júní

Við þökkum þeim fjölmörgu sem sendu okkur veiðifréttir og veiðimyndir í júní mánuði. Við ætlum að halda áfram með leikinn núna í júní og hvetjum ykkur veiðimenn og veiðikonur að senda okkur veiðifréttirnar ykkar. Það verður dregið úr innsendum fréttum 1. júlí og í boði verður glæsilegt veiðileyfi. það var Ólafur Daði sem var dreginn út fyrir maí og hann er að fara skella sér ásamt félaga í Baugstaðarós í boði SVFR.

Veiði

Góð opnun í Laxárdalnum

Opnunardagarnir voru góðir í Laxárdalnum, og í raun merkilegt hvað veiddist miðað við aðstæður. Mál manna er að mun meira sé af fiski en síðustu sumur.

Veiði

Áhrif öskufalls frá Grímsvötnum á veiðivötn í Skaftárhreppi

Föstudaginn 27. maí var farin vettvangsferð og ár kannaðar á öskufallssvæðinu frá Grímsvatnagosinu. Vatnsföll voru skoðuð í Landbroti, á Síðu og í Fljótshverfi í Skaftárhreppi. Aska var alls staðar greinileg á jörðu, en fór mikið vaxandi þegar komið var austur fyrir Fossála og austur í Fljótshverfi, en þar varð öskufallið mest. Gert hafði úrkomu og vatn vaxið í ám, allar bergvatnsár voru litaðar af öskuframburði, misjafnlega þó. Leiðni og sýrustig (pH) árvatnsins voru mæld, seiði rafveidd og vatnsýni tekin til nánari greiningar á efnainnihaldi.

Veiði

Með Veiðikortið í vasanum

Hann Einar sendi okkur frásögn af því þegar hann skaust til veiða í Kringluvatn fyrir norðan. Það hefur eitthvað látið bíða eftir sér sumarið fyrir norðan en við látum frásögnina tala sínu máli,

Veiði

Veiðimessa um helgina hjá Veiðiflugum

Verslunin Veiðiflugur fagnar veiðisumrinu 2011 og býður til veiðisýningar í verslun Veiðiflugna á Langholtsvegi 111 4 og 5 Júní. Húsið opnar kl 10.00 á laugard og verðum til kl. 18.00 og á sunnudginn opnum við kl. 11.00 og verðum til kl. 17.00

Veiði

Lukkupottur innsendra veiðifrétta, vorum að draga!

Við drógum áðan úr innsendum veiðifréttum og það var Ólafur Daði Hermannsson sem var dreginn úr pottinum. Við óskum honum til hamingju og þökkum honum, og öllum hinum sem sendu inn fréttir kærlega fyrir skemmtilega veiðifrétt. Ólafur hlýtur veiðileyfi fyrir 2 stangir í Baugstaðarós/Vola frá SVFR.

Veiði

Af veiðum í Minnivallalæk og Breiðdalsá

Ekki hafði eldgosið áhrif á Minnivallalæk, smá aska um tíma sem hvarf svo fljótlega. Fyrir gos var hópur að veiðum helgina 13-15. maí sem veiddi mjög vel er mér tjáð, meðal annars bolti um 80 cm úr Stöðvarhyl og bókaður 6 kg, og einnig veiddust nokkrir mjög stórir úr Viðarhólma neðar í ánni.

Veiði

Fleiri veiðimenn tilkynna laxagöngur í Elliðaánum

Daníel Örn Jóhannesson var staddur við Sjávarfoss í Elliðaánum fyrir nokkrum mínútum og sá þar greinilega nokkra laxa. Hann hringdi í okkur hjá Veiðivísi og ætlaði að kíkja víðar í ánna til að sjá hvort fleiri laxar væru gengnir í ánna. Ásgeir Heiðar sá laxa í morgun í ánum og það er því klárt mál að þeir sem eiga daga í opnun geta farið að hlakka til. Ef kistan er lokuð þá stoppa laxarnir í Teljarastreng og Efri Móhyl, þar sjást þeir vel ef menn skyggna hyljina varlega.

Veiði

Laxarnir mættir í Elliðaárnar

Svo virðist sem að lax sé genginn í Elliðaárnar samkvæmt arnaraugum Ásgeirs Heiðars leiðsögumanns. Laxinn er töluvert seinna á ferðinni en undanfarin sumur.

Veiði

Laxinn mættur í Blöndu

Þeir hjá Lax-á fengu skemmtilegan póst í gær frá Höskuldi B Erlingsyni Lögreglumanni og leiðsögumanni í Blöndu og svona hljómar hann: "Ég fór sumsé í gær og aftur í morgun og kíkti í Damminn og Holuna. Fínasta veður og vatn með besta móti í Blöndu. Ég tyllti mér á brúnina fyrir ofan Damminn og sat þar nokkra stund. Þá bylti sér fallegur 2 ára lax í miðjum damminum. Silfurbjartur og fallegur og á að giska 12-14 pund. Annað sá ég ekki en ég neita því ekki að hjartað tók kipp.

Veiði

Síðustu dagar Köldukvíslar framundan

Við gerðum okkur ferð uppá hálendið í gær til að kanna stöðuna á vötnunum og almennt ástandið á umhverfinu eftir öskufall úr Grímsvatnagosinu. Það er nokkur aska ofan á jarðveginum en samt ekkert í líkingu við það sem maður átti von á. En það er ennþá rétt að detta í vor á hálendi suðurlands. Ís á Fellsendavatni, mikið jökulgrugg í flestum ám og lækjum, vegurinn inní Landmannalaugar ekki fær nema vel útbúnum jeppum o.s.fr. En það sem situr þó mest eftir er að sjá veiðiperluna Köldukvísl við Tungná eyðilagða í nafni virkjana.

Veiði

Nýtt frítt veftímarit um sportveiði

Veiðislóð, tímarit um sportveiði og tengt efni er nú komið út. Það fjallar eins og fram hefur komið, um allrar handa sportveiði í fersku vatni og söltu. Síðar kemur skotveiði einnig inn í myndina.

Veiði

Vitlu eiga séns á stórlaxi í sumar?

Samkvæmt könnun sem Flugur.is framkvæmdu er Laxá í Aðaldal draumaá flestra íslenskra veiðimanna. Líklega er það stórlaxinn sem sækir á drauma veiðimanna og skyldi engan undra. Sá sem hefur sett í stórlax í hinu magnaða umhverfi Laxár verður aldrei samur. Nessvæðið hefur verið sérstaklega gjöfult á stórlaxa enda er það nánast uppselt í sumar. Enn eru þó lausar stangir á Tjarnarsvæðinu, sem hefur í gegnum tíðina ávallt verið hluti Nessvæðisins.

Veiði

Vötnin að lifna við á suður og vesturlandi

Núna er besti tíminn fyrir vatnaveiðina að fara af stað, í flestum vötnum. Fæðuframboðið er ekki orðið það mikið að bleikjan sé orðin vandlát á það sem hún étur þannig að sé hún almennt á staðnum ættu menn að setja í hana fljótlega ef réttar flugur eru undir og veitt sé á réttu dýpi. En stundum er líka bara gott að vera heppinn. Veiðivísir fékk símtal frá veiðimanni sem var að koma úr Þingvallavatni, en þar var hann í sinni fyrstu ferð eftir að hafa æft sig í vor úti á túni. Hann fór nýlega á kastnámskeið og fjárfesti í græjum sem á að nota mikið í sumar. Til að gera langa sögu stutta lagði hann bílnum, eins og hann sagði sjálfur, "við einhvern veg í þjóðgarðinum", labbaði að vatninu og fór að kasta.

Veiði

Koma fyrstu laxarnir á land 5. júní?

Það fer ekkert á milli mála að það er mættir einhverjir laxar í árnar. Það hefur sést til laxa nokkrum sinnum í Laxá í Kjós og þá má það heita pottþétt mál að Norðurá, Þverá/Kjarrá, Blanda og jafnvel fleiri ár séu þegar komnar með einhverja laxa í sína hylji

Veiði