Lífið

Eyfi og Reynir sakna ekki dansaranna

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
„Ég held að það hafi verið gott move, fyrirgefið slettuna, að taka inn fleiri bakraddir í staðin fyrir dansarana,“ segir Eyjólfur Kristjánsson tónlistarmaður í nýjasta þætti Eurovísis þar sem hann og Reynir Þór Eggertsson sérfræðingur voru gestir.

Sjá einnig: Dansarar í siguratriði Maríu verða eftir heima


Eurovision 1999
Hvað með þegar Selma Björns keppti og lenti öðru sæti með fyrir? „Þar voru bakraddirnar líka mjög aftarlega og höfðu ekkert rosalega mikið að segja í laginu en þarna held ég að raddirnar hafi svolítið mikið að segja.



Reynir segir að lagið hennar Selmu hafi í eðli sínu verið öðruvísi. „Það lag er líka danslag og hún dansaði líka sjálf mjög mikið. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki mjög hrifinn af dönsurum – þó þetta hafi komið mjög vel út á sviðinu,“ segir hann. 



Sjá einnig: Eyfi og Reynir sakna ekki dansaranna

„Það sem er hættulegt við svona tvo dansara, sérstaklega ef þeir fara mjög nálægt söngvurunum, þegar þeir eru í nærmynd þá fara að slettast fingur og hendur inn í rammann í sjónvarpinu og það kemur rosalega illa út,“ útskýrir Reynir.

Eurovision 2015
„Ef við berum saman þegar Jóhanna Guðrún keppti, myndavélin fer varla af henni allan tíman en aftur á móti þegar Selma Björns keppti 2005 þá er mjög mikið af fjarskotum, ofan á og lengst úti í sal, og það er bara ávísun á að áhorfendur heima í stofu fara að horfa á eitthvað annað,” segir Reynir.



Eyfi segir að meiri athygli verði á Maríu nú þegar dansararnir eru ekki lengur hluti af atriðinu. „Þegar dansararnir eru ekki þarna þá verður athyglin meiri á Maríu sjálfri og hún á það alveg inni og getur alveg tekið það, hún er það heillandi og fallegur flytjandi,” segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×