Innlent

Evrópumálin verði ekki forgangsmál á næsta kjörtímabili

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Lilja Alfreðsdóttir
Lilja Alfreðsdóttir Vísir/Eyþór
Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra segir að Evrópumálin eigi ekki að vera í forgangi á næsta kjörtímabili. Ástæðan sé sú óvissa sem ríki í Evrópusambandinu nú, meðal annars vegna fyrirhugaðrar útgöngu Breta úr sambandinu.

„Við vitum ekki nákvæmlega hvernig það mál fer. Bretland er eitt okkar stærsta viðskiptaland, bæði er varðar útflutning á sjávarútvegi og þeir ferðamenn sem koma til landsins, þannig að ég tel að það sé mikilvægt að við sjáum hver framvinda þeirra mála verður, auk þess að það er ekki búið að taka á þeirri skuldakrísu í Suður-Evrópu, og önnur mál sem Evrópusambandið hefur hreinlega átt í talsverðum erfiðleikum með,” segir Lilja Dögg í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Lilja sagði að Evrópumálin hefðu borið á góma á fundi hennar og Sigurðar Inga Jóhannssonar forsætisráðherra með Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri grænna, í morgun, en Katrín ræddi við forystumenn allra flokka í dag, eftir að hún tók við stjórnarmyndunarumboðinu. Lilja vildi hins vegar ekki svara til um hvort Katrín hefði verið sammála sér í þessum efnum.

„Við vorum bara mjög ánægð með þennan fund og það er alveg ljóst að við Katrín og Sigurður Ingi erum sammála um margt og helstu forgangsmál nýrrar ríkisstjórnar. Þar er ég sérstaklega að huga að innviða og velferðarmálum. Við erum einnig sammála um að heilbrigðismálin séu sett á oddinn þannig að þetta var mjög got samtal sem við áttum við Katrínu,” segir Lilja. Þá tali Framsóknarflokkurinn fyrir breiðri stjórn.

„Við teljum að það sé kominn tími á slíka stjórn í íslenskum stjórnmálum, þannig að þetta var bara jákvæður fundur.”

Hlusta má á viðtalið hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×