Fótbolti

Evra áfram hjá Juventus til 2018

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Evra hefur leikið í úrslitum Meistaradeildar Evrópu með þremur liðum.
Evra hefur leikið í úrslitum Meistaradeildar Evrópu með þremur liðum. vísir/getty
Patrice Evra hefur staðfest að hann muni skrifa undir nýjan tveggja ára samning við Juventus.

Evra kom til Juventus frá Manchester United sumarið 2014 og hefur átt stóran þátt í góðu gengi ítalska stórliðsins.

Á fyrra tímabili Evra hjá Juventus vann liðið tvöfalt heima fyrir og komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Í ár varð Juventus svo aftur tvöfaldur meistari á Ítalíu.

Evra, sem er 35 ára, er í franska landsliðshópnum sem tekur þátt á EM á heimavelli í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×