Matur

Eva Laufey gefur út bók með uppáhalds kökuuppskriftunum: Uppskrift að „mömmudraumi“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eva Laufey er einn þekktasti sjónvarpskokkur landsins.
Eva Laufey er einn þekktasti sjónvarpskokkur landsins. vísir

Í næsta mánuði kemur út glæný kökubók frá sjónvarpskokkinum Evu Laufey Kjaran Hermannsdóttur en í henni verða um áttatíu uppskriftir af uppáhalds kökum Evu.

Þar má skoða uppskriftir af Bollakökum, súkkulaðikökum, marengskökum og tilefniskökum eins og brúðartertur og fleira.

Allar kökurnar saman komnar í eina bók. Það var Karl Petersson sem tók myndirnar sem eru í bókinni en núna er verið að leggja lokahöndina á hana.

Sérstök forsala á bókinni hófst á föstudaginn en þá gefst fólki tækifæri til þess að tryggja sér eintak á mjög góðu verði en sérstakur afsláttur er á bókinni meðan á forsölu stendur.

Hér er hægt að kaupa eintak af bókinni á forsöluverði.

Hér að neðan er uppskrift að ljúffengri köku sem allir ættu að prófa:

Mömmudraumur

150 g sykur

150 g púðursykur

130 g smjör

2 egg

260 g hveiti

1 tsk matarsódi

1,5 tsk lyftiduft

salt á hnífsoddi

50 g kakó

2 dl mjólk

Aðferð:

Þeytið sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós. 

Bætið eggjum  saman við, einu í einu.

Blandið þurrefnum út í deigið ásamt mjólkinni.

Skiptið deiginu niður í tvö smurð hringlaga form og bakið við 180°C í 20 – 25 mínútur.

Súkkulaðikrem 

500 g flórsykur

60 g kakó

1 egg

80 g smjör

1 tsk vanilla (extract eða dropar)

4 msk sterkt uppáhellt kaffi

Aðferð:

Bræðið smjör við vægan hita

Blandið öllu saman í hrærivélaskál og þeytið þar til kremið verður silkimjúkt og fallegt. 

Það er mjög mikilvægt að kæla kökubotnanna áður en þið smyrjið kreminu á milli botnanna og yfir alla kökuna. Skreytið gjarnan með kökuskrauti eða ferskum berjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×