Innlent

Eurovision-djammið: Skemmtistöðum skellt í lás klukkan þrjú

Atli Ísleifsson skrifar
María Ólafsdóttir stígur á stóra sviðið í kvöld.
María Ólafsdóttir stígur á stóra sviðið í kvöld. Vísir/GVA
Skemmtistöðum í miðborg Reykjavíkur verður lokað klukkan 3 aðfaranótt sunnudags vegna hvítasunnu. Úrslitakvöld Eurovision-keppninnar fer fram fyrr um kvöldið og af reynslu fyrri ára má búast við fjölmenni í bænum.

Reglur um skemmtanahald kveða á um að dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að er bönnuð frá klukkan 3 aðfaranótt hvítasunnudags. Hið sama á við um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur svipuð spil fara fram.

Í Facebook-færslu lögreglunnar er tekið fram að listsýningar, tónleikar, leiksýningar og kvikmyndasýningar eru undanþegnar banni um helgidagafrið á hvítasunnudag. „Slíkir viðburðir mega þó ekki hefjast fyrr en klukkan 15 umræddan dag.“

Hvítasunna er auk páska og jóla ein af sameiginlegum höfuðhátíðum kristinnar kirkju. Hátíðin markaði upphaflega lok páskatímans sem stóð í fimmtíu daga, en varð síðar að sjálfstæðum minningardegi um það sem kallað er úthelling heilags anda. Nánar má lesa um hvítasunni á Vísindavefnum.



Hvaða Eurovision-lög eru best þetta árið? Taktu þátt í könnun Vísis hér.

Skemmtanaglaðir borgarbúar hafa margir velta fyrir sér hvaða reglur snúi að opnunartíma um Hvítasunnuhelgina. Þar gildir...

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Thursday, 21 May 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×