Leikjavísir

Eru GameTíví bræður byrjaðir að búa saman?

Ef Gametíví bræður myndu ákveða að byrja að búa saman er ljóst að þeir gætu nýtt sér nýju smátölvuna frá Sony Computer eða PlayStation TV. 

Þessi græja datt í verslanir á dögunum og skelltu GameTíví bræður sér niður í Elko og prufuðu græjuna og má sjá afraksturinn í meðfylgjandi myndskeiði. 

Tölvan getur streymt PlayStation 4 leikjum inní öll sjónvörp heimilisins og myndi það nýtast GameTíví bræðrum ef þeir færu að búa saman, þar sem Sverrir Bergmann elskar mjúka læknaþætti, en Óli vill bara spila tölvuleiki. 

Einnig getur græjan varpað PlayStation Vita leikjum á sjónvarpsskjá og við hana er hægt að tengja bæði PlayStation 3 og PlayStation 4 stýripinna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×