Innlent

Erlendir ökumenn í umferðaróhöppum á Vesturlandi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá einu óhappanna í síðustu viku.
Frá einu óhappanna í síðustu viku. mynd/lögreglan
Alls urðu ellefu umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku en þau voru þó öll án teljandi meiðsla þar sem fólk var almennt með öryggisbeltin spennt.

Á Facebook-síðu lögreglunnar á Vesturlandi segir að í einu óhappinu hafi erlendum ferðamanni á bílaleigujeppa fipast við aksturinn við Leirá í Hvalfjarðarsveit og var bíllinn „út um allan veg“ samkvæmt sjónarvotti áður en jeppinn fór yfir með miklum skruðningum. Ekki urðu meiðsl á fólki en bíllinn var fjarlægður af vettvangi og var mikið skemmdur.

Þá fór annar erlendur ferðamaður út af á Holtavörðuheiði. Þrennt var í bílnum en engan sakaði. Þriðji ferðamaðurinn lenti síðan í umferðaróhappi er hann missti stjórn á jepplingi í lausamöl á holóttum malarvegi á Hvítársíðu. Bíllinn fór út af og valt en ökumaður og farþegi sluppu án teljandi meiðsla.

„Komu erlendir ferðamenn við sögu í 8 af þessum 11 umferðaróhöppum sem að urðu í umdæmi LVL í sl. viku er það trúlega hæsta hlutfall ferðamanna í þessum málaflokki til þessa, en á þessum árstíma hefur þetta hlutfall verið um eða upp undir helmingur á undanförnum árum. Verkefni lögreglunnar á Vesturlandi vegna erlendra ferðamanna eru þó ekki að fullu talin því þeir koma einnig vaxandi við sögu í öðrum málaflokkum, svo sem í ökuhraðamælingum,“ segir á Facebook-síðu lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×