Heilsa

Er sturtan sexí?

sigga dögg kynfræðingur skrifar
Sjálfsfróun í sturtu getur verið einkar ánægjuleg
Sjálfsfróun í sturtu getur verið einkar ánægjuleg Mynd/Getty
Í heitu vatni slaknar á líkamann og því getur það verið kjörið tækifæri til að stunda sjálfsfróun eða bjóða bólfélaganum með í smá kelerí.

Það er gott að hafa í huga að píkan getur orðið þurrari í vatni svo það getur verið gott að hafa sleipiefni við höndina. Einmitt af þessar ástæðu þykir sumum óþægilegt að stunda samfarir í vatni.

Sturtuhausinn má nota til örvunar á snípnum og börmunum en farðu varlega í hitastigi vatnsins og ekki beina bununni beint inn í leggöngin heldur aðeins utan á.

Ef þú vilt krydda sturtuferðina enn frekar þá eru til ýmis kynlífstæki, bæði egg, titrarar og múffur, sem eru vatnsheld og jafnvel er hægt að tengja beint við sturtuhausinn.

Farðu bara varlega því umhverfið er frekar sleipt.

Góða skemmtun!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×