Tónlist

Er líkur pabba sínum í fasi og útliti

Guðrún Jón Stefánsdóttir skrifar
Lagið Þú hefur dáleitt mig keppir í Söngvakeppni sjónvarpsins í ár.
Lagið Þú hefur dáleitt mig keppir í Söngvakeppni sjónvarpsins í ár. Vísir/Vilhelm
„Aron er mjög líkur pabba sínum, bæði í fasi og útliti, hann hefur líka svona bjarta, háa söngrödd. Hann byrjaði ungur að leika og koma fram og það er yndislegt að sjá hann vera að þroskast og blómstra í því. Ég fyllist alltaf af gríðarlegu stolti og tárast reglulega á æfingum, en hann sýnir manni að lífið heldur áfram í börnunum okkar og að minning elsku Sjonna okkur lifir,“ segir Þórunn Erna Clausen, höfundur lagsins Þú hefur dáleitt mig svo og textans, en stjúpsonur hennar, Aron Brink, syngur lagið, sem keppir í seinni undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins sem fram fer þann 4. mars í Háskólabíói.

Þórunn segir lagið vera mikla gleðisprengju, og vonar innilega að fólk fái þá tilfinningu þegar það hlustar á lagið.

„Það er fjörugt, líflegt og svona suðrænn taktur í því, svolítið svona eins og fótboltakeppnislag. Ég held að það sé alveg kominn tími á svoleiðis lag í Eurovision, sérstaklega nú á þessum tímum, lag sem fær okkur til að dansa, sjá fegurðina í ástinni í kringum okkur og minnir okkur á að njóta augnabliksins og vera góð við aðra,“ útskýrir Þórunn.

En hvernig kom það til að Aron Brink var valinn til að syngja lagið?

„Það var þannig að við Þórunn vorum stödd í barnaafmæli hjá litlu frænku okkar í fyrra. Það var þá sem við heyrðum lagið hans Justins Timberlake, „Can't Stop the Feeling“, í fyrsta sinn. Við töluðum um það hvað það væri gaman að gera svona lag fyrir mig til að syngja. Svona glaðlegt og skemmtilegt með danstakti. Þannig byrjaði þetta allt að rúlla og nú erum við að fara með litlu hugmyndina okkar sem er ekki lítil lengur að keppa í Söngvakeppninni,“ segir Aron Brink spenntur.

Aron á ekki langt að sækja hæfileika sína, en faðir hans, Sjonni Brink heitinn, var mikill tónlistarmaður. Hann tók meðal annars nokkrum sinnum þátt í Söngvakeppninni Sjónvarpsins og var mikill aðdáandi Eurovision.

„Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi og spenningurinn var alltaf meiri ef pabbi var að keppa. Mér finnst það æðislegt. Það væri draumurinn að fara út í aðalkeppnina sex árum eftir að lagið þeirra pabba og Þórunnar fór alla leið,“ segir hann.

Aðspurður hvort Aron hugsi oft til pabba síns, þegar hann kemur fram segir hann svo ekki vera.

„Ég einhvern veginn næ að skilja mig frá öllu og hugsa ekki um neitt eða neinn og er bara ég. Ég hugsa oft til hans áður en ég kem fram og hugsa hvaða ráð hann myndi gefa mér áður en ég færi á sviðið. En ég veit að hann fylgist með mér og passar upp á mig,“ segir Aron.

Lagið Þú hefur dáleitt mig fjallar um ástina og hvernig hún getur hjálpað manni upp úr sorginni.

„Og líka hvernig áhyggjurnar og sorgirnar hverfa þegar ástin er til staðar,“ segir Aron Brink.

Viðbrögðin við laginu hafa verið góð og fjöldi barna er farinn að söngla með laginu nú þegar.

„Við erum búin að fá svo yndisleg viðbrögð frá fólki við laginu sem við erum gríðarlega þakklát fyrir. Æfingar hafa gengið ótrúlega vel, og ég verð að segja að hópurinn í atriðinu er alveg sérstaklega hress og skemmtilegur, það er mikið fjör á æfingum, við gætum ekki verið heppnari með hóp og hlökkum ekkert smá til að sýna ykkur atriðið á sviðinu,“ segja þau.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×