Fótbolti

Enrique ekki viss um framhaldið hjá Barcelona

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Luis Enrique
Luis Enrique Vísir/Getty
Luis Enrique, knattspyrnustjóri Barcelona, vildi lítið tjá sig um hvort hann myndi halda áfram með liðið að tímabilinu loknu.

Enrique sem tók við liðinu af Tata Martino árið 2014 hefur stýrt liðinu til sigurs í tvígang í spænsku deildinni ásamt því að vinna alla titla sem í boði voru á fyrsta tímabili.

Samningur Enrique á Nývangi rennur út næsta sumar en hann segist ekki vera búinn að ákveða framhaldið.

„Ég veit að ég er hjá besta félaginu með frábæra leikmenn og mér þykir það frábært en þetta er mjög krefjandi starf. Það eru ýmsar fórnir sem ég þarf að vega og meta áður en ég skrifa undir nýjan samning.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×