Fótbolti

Enn syrtir í álinn hjá Rúnari og lærisveinum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Það er orðið heitt undir Rúnari hjá norska liðinu
Það er orðið heitt undir Rúnari hjá norska liðinu vísir/stefán
Tromsö lagði Lilleström 2-1 í 24. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með marki á síðustu mínútu.

Mikill vandræðagangur hefur verið á liði Lilleström sem leikur undir stjórn Rúnars Kristinssonar. Liðið er aðeins tveimur stigum frá fallsæti og hefur leikið leik meira.

Aron Sigurðarson lék síðustu þrettán mínúturnar fyrir Tromsö sem komst yfir á síðustu mínútu fyrri hálfleiks.

Lilleström náði að jafna um miðbik seinni hálfleiks en aftur voru lokamínúturnar Lilleström erfiðar og kom sigurmarkið á 90. mínútu.

Tromsö lyfti sér upp í 10. sæti með sigrinum og 30 stig en Lilleström situr eftir með 23 stig í 13. sæti í 16 liða deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×