Fótbolti

Enn gerir PSG jafntefli

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
vísir/getty
Frakklandsmeistarar PSG urðu að sætta sig við sitt þriðja jafntefli í fimm leikjum í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Rennes og PSG gerðu 1-1 jafntefli í Rennes.

PSG vann frönsku deildina með nokkrum yfirburðum á síðustu leiktíð en hafa hikstað lítillega nú í upphafi leiktíðar þó liðið hafi ekki enn tapað leik.

Zoumana Camara kom PSG yfir tveimur mínútum fyrir hálfleik eftir sendingu Lucas Moura.

Varamaðurinn Paul Ntep jafnaði metin á tíundu mínútu seinni hálfleiks, fjórum mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður.

PSG er með níu stig í fimm leikjum, stigi meira en Rennes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×