Lífið

Engist um af sársauka eftir að hafa látið eina hættulegustu vespu heims stinga sig

Stefán Árni Pálsson skrifar
Coyote Peterson er harður nagli
Coyote Peterson er harður nagli
Þátturinn Breaking Trail með Coyote Peterson er mjög vinsæll á sjónvarpsstöðinni Animal Planet en þar ferðast hann um óbyggðirnar og tekur oft á tíðum þátt í misgáfulegum tilraunum og koma stundum stórhættuleg dýr við sögu.

Í nýjasta þættinum náði hann að klófesta eina hættulegustu vespu heims sem ber nafnið Tarantula Hawk. Vespan er fræg fyrir sérstaklega sársaukafullt bit og tók Peterson þá áskorun að láta hana stinga sig í handlegginn.

Strax í kjölfarið upplifði hann mesta sársauka sem hann hefur fundið og lamaðist tímabundið í handleggnum.

Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu en Peterson er bitinn þegar 10:45 mínútur eru liðnar af því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×