Innlent

Enginn fær umboð frá Guðna

Þorgeir Helgason skrifar
Píratar skiluðu stjórnarmyndunarumboðinu til forsetans í gær. Þeir höfðu haft umboðið í tíu daga en höfðu ekki erindi sem erfiði.
Píratar skiluðu stjórnarmyndunarumboðinu til forsetans í gær. Þeir höfðu haft umboðið í tíu daga en höfðu ekki erindi sem erfiði. Vísir/Stefán
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir alvarlega stöðu komna upp við stjórnarmyndun á Alþingi. Í ljósi sjónarmiða sem komu fram í viðræðum Guðna við flokksleiðtoga í gær ákvað hann að veita engum þeirra umboð til stjórnarmyndunar að sinni. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér í gærkvöldi.

Píratar skiluðu stjórnarmyndunar­umboðinu til forsetans í gær þegar ljóst var að viðræður þeirra við Vinstri hreyfinguna – grænt framboð, Viðreisn, Bjarta framtíð og Samfylkinguna strönduðu. Helstu þrætueplin voru sjávarútvegs-, landbúnaðar- og ríkisfjármál.

„Það er kannski tilefni til þess að skoða myndun utanþingsstjórnar,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata. Hún segir að ekki sé orðið tímabært að ganga til kosninga á ný og að myndun þjóðstjórnar sé ávísun á engar breytingar.

„Ég hef þó enn þá sannfæringu fyrir því að við gætum náð saman. Þetta er ekki í huga okkar Pírata algerlega fullreynt. En fólk þarf svigrúm núna og þá finnst mér rétt að einhver annar fái að taka keflið,“ segir Birgitta.

Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, er sama sinnis og Birgitta, og telur ekki tímabært að fara að velta fyrir sér myndun þjóðstjórnar. „Það verður mynduð stjórn, hvort það gerist í næstu viku eða þarnæstu mun þurfa að koma í ljós. Ég hef enn trú á því að fimm flokkarnir geti náð saman og myndað stjórn,“ segir Logi Már.

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, segir ekki tímabært að fara að ræða kosningar. „Það er aðeins rétt mánuður liðinn frá kosningum. Menn verða auðvitað að fara að sýna einhverja hugkvæmni og það eru aðrir möguleikar eins og minnihlutastjórnir sem hægt er að skoða,“ segir Benedikt.

„Fólk þarf kannski að fara að hugsa út fyrir kassann. Það er eðlilegt að það hafi verið reynt við meirihlutastjórnir en einhverjir möguleikar eins og minnihlutastjórnir hljóta núna að koma til skoðunar,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður VG.

Formaður Bjartrar framtíðar, Óttarr Proppé, segist ekki vera með neinar frábærar hugmyndir um hver næstu skref ættu að vera. „Ég held, eftir að hafa verið í viðræðum sleitulaust frá kosningum, þá sé ágætt fyrir mig að geyma spámanninn aðeins og leyfa öðrum að finna út úr því hver næstu skref séu,“ segir Óttarr.

Guðni segist vænta tíðinda frá flokksleiðtogunum í þessari viku. Hann minnti þá jafnframt á ábyrgð þeirra og skyldu um að ná samkomulagi um myndun ríkisstjórnar.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×