Innlent

Engin vandamál á Eistnaflugi

Atli Ísleifsson skrifar
Fjöldi manns er nú kominn saman á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi á Neskaupstað
Fjöldi manns er nú kominn saman á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi á Neskaupstað Vísir/Guðný Lára
Lögregla á Neskaupstað segir að rokkhátíðina Eistnaflug hafi farið svakalega vel fram í gær og í nótt. „Hér eru bara allir að rokka, þar með talin lögreglan“ sagði talsmaður lögregluembættisins í samtali við Vísi.

Lögregla segir engin fíkniefnamál hafa komið upp og að hið fínasta lið sé saman komið í bænum. „Við höfum ekki þurft að hafa afskipti af neinum að því er heitið getur. Þetta hefur fyrst og fremst snúist um að veita mönnum ýmiss konar aðstoð.“

Tónlistarhátíðina Eistnaflug stendur nú yfir á Neskaupstað og er þetta í tíunda sinn sem hún er haldin.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×