Fótbolti

Engin drykkja á leikmönnum segir fjölmiðlafulltrúinn

Frétt Index þar sem fjölmiðlafulltrúinn svarar stuttur í spuna.
Frétt Index þar sem fjölmiðlafulltrúinn svarar stuttur í spuna.
Fjölmiðlafulltrúi Króata, Tomislav Pacak, segir ekkert vera hæft í frétt Vísis um að átta leikmenn landsliðsins hafi drukkið fram á nótt eftir fyrri leik Íslands og Króatíu í HM-umspilinu.

"Eftir leikinn? Nei, þetta er ekki satt," sagði Pacak stuttur í spuna við króatíska miðilinn Index.

Í frétt vefsins kemur einnig fram að einn áttmenninganna, Domagoj Vida, hafi eitt sinn verið sektaður fyrir að opna bjór í liðsrútu Dinamo.

Króatar verða með blaðamannafund eftir rúman klukkutíma og þar á þetta mál klárlega eftir að koma upp. Vísir verður á staðnum og flytur fréttir af gangi mála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×