Innlent

Endurskoðar reglur um vistvæna landbúnaðarframleiðslu

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að endurskoða reglugerð um vistvæna landbúnaðarframleiðslu. Fréttablaðið hefur fjallað ítarlega undanfarið um skort á eftirliti með merkingum á vistvænni framleiðslu.

Samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu er hópnum ætlað að fara yfir reglugerð um vistvæna landbúnaðarframleiðslu í heild sinni, meðal annars allar skilgreiningar á framleiðslunni og reglur um eftirlit. Tillögum hópsins er ætlað að byggja nýjan grunn að reglum um vistvæna landbúnaðarframleiðslu.

Þar til þeirri vinnu lýkur verður stuðst við núgildandi reglugerð og þeir framleiðendur sem áður hafa fengið vottun geta á grundvelli reglugerðarinnar fengið viðurkenningu á því að þeir standist skilyrði hennar. Áfram verður stuðst við gildandi merki um vistvæna framleiðslu.

Hópinn skipa fulltrúar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Bændasamtaka Íslands og Sölufélags garðyrkjumanna. Auk þess hefur Neytendasamtökunum verið boðið að skipa fulltrúa.

Samkvæmt 4. grein reglugerðarinnar geta framleiðendur óskað eftir viðurkenningu á vistvænni landbúnaðarafurð til viðkomandi búnaðarsambands. Framleiðendur sem nú nýta sér merkið eru hvattir til að óska sem fyrst eftir úttekt til búnaðarsambands á sínu starfssvæði. Framleiðendum, sem óska þess að fá framleiðslu sína viðurkennda sem vistvæna, er á sama hátt bent á að sækja um til búnaðarsambands við fyrsta tækifæri.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun halda skrá um þá sem fá slíka viðurkenningu og birta á heimasíðu sinni. Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið vill með aðgerðum sínum núna, í samstarfi við samtök framleiðenda og neytenda koma reglum um vistvæna landbúnaðarframleiðslu í betra horf svo ekki þurfi að leika vafi á því í hugum neytenda, hvaða framleiðsla hefur rétt til að nýta sér það heiti.


Tengdar fréttir

Nærri allt grænmeti merkt án þess að hafa hlotið vottun

Skilyrðum reglugerðar um vistvænan landbúnað hefur ekki verið fylgt um árabil. Þrátt fyrir það merkja flestir grænmetisbændur vörur sínar. Framkvæmdastjóri dreifingaraðila segir að hér sé um misskilning sé að ræða.

Ráðherra segir óeðlilegt að nota óvottað merki

Sigurður Ingi Jóhannsson, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, segir að grænmetisbændur verði að spyrja sig að því hvort þeim þyki eðlilegt að nota eftirlitslausa merkingu.

Ekkert eftirlit því það gleymdist að úthluta því í ráðuneytinu

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið aðhafðist ekkert í tólf ár vegna eftirlitsleysis með vistvænum landbúnaðarafurðum því það gleymdist að úthluta málinu í ráðuneytinu. Ráðherra mun funda í vikunni með hagsmunaaðilum til meta hvort ástæða sé til að fella reglugerð um merkingarnar úr gildi.

Vistvæn vottun án eftirlits og villandi

Vottunin Vistvæn landbúnaðarafurð sem matvælaframleiðendur merkja vörur sínar með er villandi að mati formanns Neytendasamtakanna. Ekkert eftirlit er með vottuninni og dæmi um að framleiðendur án vottunar noti merkinguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×