Lífið

Emma Watson dúkkan varð að Justin Bieber dúkkunni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Dúkkan er talin líkjast mjög Justin Bieber.
Dúkkan er talin líkjast mjög Justin Bieber. Vísir/Skjáskot
Dúkka sem á að líkjast Emmu Watson í hlutverki Fríðu í væntanlegri kvikmynd um Fríðu og dýrið hefur vakið athygli.

Dúkkan hefur þó ekki vakið athygli fyrir það hve lík hún er Emmu Watson heldur hefur hún þótt líkjast mjög kanadísku poppstjörnunni Justin Bieber.

Fjölmargir hafa vakið athygli á þessu og tjáð undrun sína yfir hönnun dúkkunnar á samfélagsmiðlum og sagt að dúkkan líti út fyrir að eiga að vera Justin Bieber í gulum kjól með hárkollu.

Hér að neðan má sjá viðbrögð nokkurra á samfélagsmiðlunum. Sitt sýnist hverjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×