Fótbolti

Emil: Við erum í skítamálum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður og leikmaður Hellas Verona á Ítalíu, segir ljóst að breytinga var þörf hjá liði sínu en þjálfarinn Andrea Mandrolini var látinn fara nú í vikunni.

Hellas Verona er í neðsta sæti ítölsku deildarinnar og er enn án sigurs eftir fyrstu fjórtán umferðirnar. Emil segist í viðtali við Akraborgina á X-inu vera að mörgu leyti sáttur við eigin spilamennsku en hann sér á eftir þjálfaranum eftir fimm ára samstarf þeirra í Verona.

„Er það ekki þannig að þjálfarinn fær að kenna á því fyrir gengið? Það var að mínu mati ekki honum að kenna enda fullt af hlutum sem hafa ekki gengið upp hjá okkur í ár,“ sagði Emil í viðtalinu.

Sjá einnig: Nýi þjálfarinn hjá Verona talar vel um Emil

Hann segir að þetta sé þó eðlileg afleiðing af því að hafa ekki unnið í fjórtán leikjum í röð.

„Það er í raun alveg ótrúlegt. Þetta hefur örugglega tekið meira á andlega en nokkuð annað,“ segir Emil en uppgangur Hellas Verona undanfarin fimm ár hefur verið mikill undir stjórn Mandrolini.

„Við höfum upplifað marga sigra undanfarin fimm ár og þrátt fyrir að þetta hafi verið erfitt inn á milli höfum við alltaf náð að komast í gegnum alla erfiðleika. En nú virðist sem svo að mælirinn hafi verið fullur hjá félaginu, því miður.“

Á þessum fimm árum vann Hellas Verona bæði C- og B-deildina og hefur náð að halda velli í A-deildinni þar til nú. Emil segir ljóst að fall blasir við nema eitthvað breytist.

„Við erum í skítamálum svo maður segir alveg eins og er. Það þurfti að gera einhverjar breytingar og það er komin pressa frá stuðningsmönnum og öllum í kringum félagið,“ segir hann.

Viðtalið má heyra í heild sinni hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×