Fótbolti

Emil: Nokkuð viss um að vera með fast byrjunarliðssæti

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Emil Atlason gekk í raðir Þróttar í dag og spilar með liðinu í Pepsi-deild karla á næsta ári. Hann var samningsbundinn KR en spilaði með Val sem lánsmaður á síðustu leiktíð.

Emil gerði tíu mánaða samning við Þróttara sem verða í fyrsta sinn í sex ár á meðal þeirra bestu á næsta tímabili.

„Þetta er eitthvað sem þeir buðu mér upp á og ég tók því. Ég er mjög sáttur með þetta,“ sagði Emil við Vísi eftir að hann skrifaði undir samninginn á blaðamannafundi í Laugardalnum í dag.

Þróttur er nýbúið að ráða Dana að nafni Per Rud sem yfirmann knattspyrnumála, en nýliðarnir ætla sér stóra hluti á næstu árum.

„Ég fór vel yfir þetta en mér leist svo vel á allt sem Þróttur hefur upp á að bjóða og því ákvað ég að koma hingað,“ sagði Emil.

Þessi öflugi framherji, sem fór á kostum með U21 árs landsliðinu í síðustu undankeppni, hefur ekki átt fast sæti í sínum liðum undanfarið. Hvorki hjá KR né Val.

Hann ætlar sér nú að spila alla leiki og það sem fremsti maður enda sárvantar Þrótturum framherja eftir að Viktor Jónsson fór aftur heim í Víking. Viktor skoraði 19 mörk fyrir Þrótt í 1. deildinni í sumar sem lánsmaður frá Víkingi.

„Þetta [Gregg Ryder] er þjálfari sem hefur 100 prósent traust á mér. Ég er nokkuð viss um að ef ég stend mig vel verð ég með fast byrjunarliðssæti. Ég stefni að því að vera fastamaður og spila mjög vel hérna,“ sagði Emil Atlason.

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×