Fótbolti

EM í dag: Nice í Nice

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiríkur Stefán Ásgeirsson og Tómas Þór Þórðarson eru í Nice í Frakklandi og fara yfir allt sem viðkemur íslenska landsliðinu á EM í fótbolta í þætti dagsins á EM í dag.

Ísland mætir í dag Englandi í 16-liða úrslitum EM í Frakklandi en þetta er án nokkurs vafa stærsti leikur íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu frá upphafi.

Leikurinn hefst klukkan 19.00 að íslenskum tíma í kvöld en í þættinum er farið yfir í hverju möguleikar Íslands felast til að vinna leikinn í kvöld, sem og það er farið yfir blaðamannafundi landsliðanna á leikvanginum í gær.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×