Innlent

Eldur í þaki á Grettisgötu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Eldurinn kviknaði í þaki hússins.
Eldurinn kviknaði í þaki hússins. Vísir/Vilhelm
Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna elds í þaki húss við Grettisgötu.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu voru þrír menn að vinna upp á þaki hússins og tókst þeim, ásamt lögreglu, að hefta útbreiðslu eldsins áður en slökkvilið bar að garði. Greiðlega gekk að slökkva eldinn þegar slökkvilið mætti á staðinn.

Tilkynning um eldsvoðann barst rétt fyrir klukkan fjögur í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×