Eldfjall framlag Íslands til Óskarsverðlauna 21. september 2011 15:56
Meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar hafa valið Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2012 sem besta erlenda myndin. Kvikmyndin Eldfjall fjallar um Hannes, 67 ára gamlan mann sem er að komast á eftirlaunaaldur. Hann er karlmaður af gamla skólanum, einangraður frá fjölskyldunni og heimilinu og þarf nú að takast á við nýtt hlutverk í lífinu. Eldfjall er þroskasaga manns sem þarf að takast á við val fortíðarinnar og erfiðleika nútímans til að eiga möguleika á framtíð. Eldfjall var frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem hún keppti í tveimur flokkum: Director's Fortnight og Camera D'Or. Myndin hefur einnig verið sýnd á fleiri alþjóðlegum kvikmyndahátíðum eins og í Karlovy Vary og nú síðast fyrir stuttu í Toronto í Kanada. Eldfjall kemur til almennra sýninga á Íslandi þann 30. september næstkomandi. Leikstjóri og handritshöfundur Eldfjalls er Rúnar Rúnarsson og myndin er framleidd af Skúla Malmquist og Þóri Snæ Sigurjónssyni hjá Zik-Zak. Hér fyrir ofan má sjá nýtt sýnishorn úr Eldfjalli en það var frumsýnt hér á Vísi í dag.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira