Glamour

Ekkert eftirpartý hjá Wang

Ritstjórn skrifar
Mynd/AFP
Fatahönnuðurinn Alexander Wang sýndi svarta og seiðandi fatalínu sína í New York um helgina en ef hann má ráða verður við allar í svörtum níðþröngum leðurbuxum með stórum tölum og rennilásum næsta haust, já svartur var ríkjandi eins og venjulega hjá Wang. 

Rauði þráðurinn í sýningunni var setningin "No after party" eða ekkert eftirpartý, sem var saumuðu í sokkabuxur og boli en það hlýtur að vera meint sem kaldhæðni þar sem fatalínan smellpassar einmitt í svoleiðis samkomur. Hárið og förðun fyrirsætnana var líka í þeim anda, smá úfið og dökk augu. 

Alltaf gaman að skoða sýningar Wang og eins og venjulega er erfitt að bíða með frá á næsta vetur og haust með að fá flíkurnar í búðir. 






×