Íslenski boltinn

Ejub: Eigum ekki völl til að æfa svona skot

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ejub Purisevic er komin með þrjú stig.
Ejub Purisevic er komin með þrjú stig. vísir/vilhelm
Ejub Purisevic þjálfari Ólsara, var eðlilega kátur með 2-1 sigurinn á Breiðabliki í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla kvöld. Hann var þó ekkert að tapa sér í gleðinni þegar Vísir ræddi við hann eftir leik.

"Það er rosalega gott að fá þrjú stig í fyrstu umferð gegn sterku liði Breiðabliks," sagði hann stóískur en sáttur.

Nýliðarnir nýttu færin sem þeir fengu, það er að segja skotfærin. Ejub vissi alltaf að þetta yrði erfiður leikur.

"Við spiluðum svona svipað allt undirbúningstímabilið. Við héldum skipulagi í kvöld og vissum svona ca. hvað Breiðablik ætlaði að gera. Mér fannst það oft á tíðum ganga upp. Við vorum þolinmóðir og biðum eftir tækifærum. Við vissum að við myndum fá færi eða skotfæri. Þetta var ekki auðvelt en gekk upp," sagði Ejub sem var þó ósáttur með byrjunina í seinni hálfleik. Mjög ósáttur.

"Ef ég á að segja satt skil ég ekki hvað var í gangi í byrjun seinni hálfleiks. Þetta var fáránlegt og alveg til skammar. Ég hef enga hugmynd um hvað var í gangi þarna," sagði hann.

Mörk Ólsara í kvöld voru algjörlega mögnuð. Hér má sjá annað þeirra. Aðspurður hvort Ejub hefði bara verið með liðið á skotæfingum í allan vetur svaraði hann brosandi:

"Nei, ég bara reyni að setja upp sóknir þannig við klárum með skoti. Stundum gengur það upp og stundum ekki. Ég myndi ekki segja að við værum að æfa þetta mikið enda erum við ekki með völl þar sem við getum æft skot af þessu færi."

Ólsarar byrjuðu ekki vel í Pepsi-deildinni fyrir þremur árum og því veit Ejub hvað þetta gefur liðinu.

"Þetta gefur okkur mikið hvað varðar sjálfstraustið og við fáum meiri trú á verkefnið. Ef ég á að vera heiðarlegur þá hefði ég verið sáttur með eitt stig en þrjú stig eru enn betra," sagði Ejub Purisevic.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×