Innlent

Einn með allar tölur réttar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ef þú verslaðir miða í Olís Sæbraut ættirðu að kíkja á hann og athuga hvort lánið hafi verið með þér.
Ef þú verslaðir miða í Olís Sæbraut ættirðu að kíkja á hann og athuga hvort lánið hafi verið með þér. vísir/vilhelm

Einn lottóspilari var með tölurnar 11, 18, 25, 34 og 39 í lottóröðinni sinni þegar dregið var í kvöld. Svo heppilega vildi til fyrir hann að þessar tölur komu einmitt upp í kvöld og hlýtur hann að launum rúmlega 45 milljónir króna. Miðinn var keyptur í Olís við Sæbraut í Reykjavík.

Enginn hlaut bónusvinninginn að þessu sinni og enginn var með allar tölur réttar í jókernum. Fimm voru hins vegar með fjórar jókertölur réttar og fá að launum 100.000 krónur hver.

Tveir jókermiðanna voru keyptir á lotto.is og er annar þeirra í áskrift. Hinir voru keyptir í Söluturninum í Hraunbergi, Olís við Ánanaust og 10-11 Seljavegi en allir þessir staðir eru í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×