Innlent

Einn fluttur á slysadeild eftir slys á Reykjanesbraut

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur
Einn var fluttur á slysadeild í Reykjavík eftir umferðarslys á Reykjanesbrautinni í dag. Sjúkrabílar og lögreglubílar fóru á vettvang. auk tækjabíls, en slysið varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Aðalbrautar í Reykjanesbæ.

Samkvæmt Brunavörnum Suðurnesja eru sjúkrabílar byrjaðir að skila sér aftur í hús eftir slysið, en eins og áður hefur komið fram var einn aðili fluttur til Reykjavíkur með sjúkrabíl. Umferðartafir urðu á Reykjanesbrautinni vegna slyssins.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×