Innlent

Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur á Krókhálsi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Áreksturinn var nokkuð harður eins og sjá má.
Áreksturinn var nokkuð harður eins og sjá má. Vísir
Karlmaður var fluttur á slysadeild Landspítalans í dag eftir harðan árekstur við Krókháls í Reykjavík. 

Tildrög áreksturins voru þannig að póstbíll var bakkað út af bílaplani við Krókháls og skall við það á gráan fólksbíl sem var ekið eftir götunni.

Þrír lögreglubílar, tveir sjúkrabíll og slökkviliðsbíll voru kallaðir út en ekki þurfti að klippa manninn úr bílnum eins og talið var í fyrstu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×