Íslenski boltinn

Einar Logi til HK

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Einar Logi í leik með ÍA gegn Breiðabliki.
Einar Logi í leik með ÍA gegn Breiðabliki. vísir/pjetur
Knattspyrnumaðurinn Einar Logi Einarsson er genginn í raðir HK. Þetta kemur fram á Fótbolta.net.

Einar, sem er 23 ára, mun leika með HK í 1. deildinni í sumar en hann er uppalinn Skagamaður.

Hjá HK hittir Einar fyrir Þorvald Örlygsson en hann þjálfaði ÍA seinni hluta sumars 2013 þegar Einar lék með liðinu.

Einar lék tvo leiki með ÍA í 1. deildinni í fyrra en gekk svo til liðs við Kára og spilaði þrjá leiki með liðinu í 4. deildinni.

HK sækir Gróttu heim á Vivaldivöllinn í opnunarleik 1. deildarinnar á föstudaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×