Tónlist

Einar Bárðar kemur öllum í opna skjöldu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Einar Bárðar við píanóið og Rúnar og Jói fylgjast spenntir með.
Einar Bárðar við píanóið og Rúnar og Jói fylgjast spenntir með. Mynd/Bylgjan
Athafnamaðurinn Einar Bárðarson kom öllum í opna skjöldu í útvarpsþættinum Bakaríið á Bylgjunni um helgina þegar hann flutti frumsamda lagið Ég sé í beinni útsendingu.

Einar hefur löngum gengið undir nafninu Umboðsmaður Íslands enda gerði hann hljómsveitir á borð við Skítamóral og Nylon frægar. Færri vissu þó að Einar byggi yfir slíkum sönghæfileikum og raun bar vitni á Bylgjunni.

Ég sé er hugljúf ballaða sem hefur heldur betur runnið ljúflega ofan í landsmenn.

Bakaríinu er stjórnað af leikurunum Rúnari Frey og Jóhannesi Hauki og hafa margir skrifað athugasemdir við flutning Einars á Facebook-síðum þeirra sem og hjá Einari sjálfum.

Meðal þeirra eru hjónin Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Geir Sveinsson.

„Vá! Algjörlega frábær flutningur hjá þér!!! Þetta lag er líka alveg einstakt!“ skrifar Jóhanna og Geir tekur í sama streng.

„Einar minn...algjör snilld! Hefði ekki verið slæmt að þú hefðir tekið þetta hjá "okkur" !“ skrifar Geir og vísar eflaust í brúðkaup þeirra Jóhönnu sem var haldið fyrr í sumar.

Þá hvetur Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon Einar til þess að gefa út sólóplötu.

„Frábær flutningur. Röddin frábær og píanóleikurinn óaðfinnanlegur. Einar Bárðarson kemur sífellt á óvart! Sólaplata löngu tímabær.“

Hlustið á flutning Einars hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×