Lífið

Eigum öll jörðina saman

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Það er heilmikill boðskapur í bókinni án þess að ég sé að lesa yfir hausamótunum á fólki,“ segir Lára.
"Það er heilmikill boðskapur í bókinni án þess að ég sé að lesa yfir hausamótunum á fólki,“ segir Lára. Vísir/GVA
Ég er vön myndmálinu, það er mitt meginmál. Ég bý til teiknimyndir og skrípó en ég er líka skúffuskrifari og ákvað svo að gefa þessa sögu út,“ segir Lára Garðarsdóttir teiknari.

 

Hún var að gefa út sína fyrstu bók, Flökkusögu, sem fjallar um ísbjarnarmæðgurnar Ísold og mömmu hennar. Þær neyðast til að leita nýrra heimkynna eftir miklar breytingar og þurfa að takast á við krefjandi verkefni.

Á nýja staðnum hitta þær fyrir brúna birni og húnarnir byrja fljótlega að leika sér saman.

„Ísbirnir eru miklir sundgarpar og þær mæðgur sýna mikinn hetjuskap. Þannig bendi ég á að hver og einn býr yfir hæfileikum. Svo eru börn fordómalaus í eðli sínu og pæla ekkert í hvernig leikfélagarnir eru á litinn, ef þeim finnst gaman þá finnst þeim gaman. Það eru þeir fullorðnu sem eru tortryggnari,“ útskýrir Lára.

Skyldi sagan vera búin að dvelja lengi í skúffunni?

„Að minnsta kosti ár. Hugmyndin spratt af því að fyrir tveimur árum las ég grein í blaði þar sem fram kom að í Alaska hefði fundist blendingur brúns bjarnar og hvíts. Þarna höfðu þessar tvær bjarnartegundir eignast afkvæmi. Þetta var ofboðslega fallegt dýr en það var auðvitað skotið,“ lýsir hún.

„Við eigum öll jörðina saman og þó við séum mismunandi þá erum við lík innst inni. Það eru að gerast breytingar og við þurfum að íhuga vel hvernig við ætlum að taka á þeim,hvort sem þær snúast um manneskjur eða dýr.“

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. október 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×