Lífið

Eiginkonan úr King of Queens hjólar í Vísindakirkjuna í nýrri þáttaröð

Birgir Olgeirsson skrifar
Leah Remini.
Leah Remini. Vísir/Getty
Heimildarþáttaröð bandarísku leikkonunnar Leah Remini um Vísindakirkjuna verður frumsýnd 29. nóvember næstkomandi í Bandaríkjunum. Remini, sem er hvað þekktust fyrir að leika Carrie Heffernan, eiginkonu Doug Heffernan í gamanþáttaröðinni King of Queens, ræðir við fyrrum meðlimi Vísindakirkjunnar sem allir halda því fram að þeir hafi orðið fyrir misnotkun og áreitni af hálfu starfsmanna kirkjunnar.

Kevin James og Leah Remini í King of Queens.Vísir/Getty
Hópur af fyrrverandi háttsettum meðlimum innan kirkjunnar hjálpaði Remini að nálgast viðfangsefnið á afar ítarlegan hátt.

„Þessi samtök, sem velta milljörðum, hafa of lengi komist upp með að kúga fórnarlömb sín og blaðamenn sem reyna að segja sannleikann um starfsemi kirkjunnar. Það er von mín að þessi þáttaröð muni varpa ljósi á upplýsingar sem gerir fólk upplýst um það sem gengur í raun á þarna innandyra og hvetji aðra til að tala svo hægt verði að binda endi á ofbeldið. Ég vona að fólkið sem sagði skilið við kirkjuna finni fyrir öryggi vitandi að það getur núna leitað skjóls. Ég vona að aðrir sem hafa upplifað ofbeldi innan kirkjunnar stígi fram og hjálpi okkur að berjast gegn þessu,“ segir Remini.

Hún sjálf yfirgaf Vísindakirkjuna árið 2013 eftir að hafa verið meðlimur hennar í 30 ár. Það gerðist mánuðum eftir að bók Lawrence Wright um kirkjuna, Going Clear: Sceintology, Hollywood and the Prison of Belief, kom út. Sú bók var grunnurinn að samnefndri heimildarmynd kvikmyndagerðarmannsins Paul Haggis sem sjálfur yfirgaf Vísindakirkjuna með látum nokkrum árum á undan Remini.

Hún gaf út bókina Troublemaker: Surviving Hollywood and Scientology árið 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×