Glamour

Eigandi Topshop í djúpum skít

Ritstjórn skrifar
Philip Green er umdeildur viðskiptamaður.
Philip Green er umdeildur viðskiptamaður. Mynd/Getty
Alþingismenn Bretlands hafa kosið um að Sir Philip Green, eigandi Topshop, skuli vera sviptur riddarakrossi sínum sem hann fékk frá Elísabetu Bretlandsdrottningu. Green hefur í gegnum tíðina verið gagnrýndur fyrir viðskiptahætti sína en til að mynda borgar hann ekki skatta í Bretlandi þar sem hann er með lögheimili í Mónakó. 

Kornið sem fyllti mælinn hjá þingmönnum Bretlands var meðal annars það hvernig Philið fór með bresku keðjuna BHS, eða British Home Store. Hann seldi keðjuna á seinasta ári fyrir eina milljón punda eftir að hafa nánast hætt að veita verslununum athygli. Í kjölfarið eftir að hann seldi þurfti að lýsa fyrirtækið gjaldþrota og um 11.000 manns misstu vinnuna sína. 

Almenningur í Bretlandi og þingið þykir þessir viðskiptahættir óásættanlegir og telja nauðsynlegt að Green verði sviptur þessum mikla heiðri sem hann hlotnaðist frá Elísabetu. Þverpólitískur stuðningur var á bakvið kosninguna en hærri nefnd þarf að samþykkja tillöguna svo að hún gangi í gegn. 

Philip Green gerði bresku verslunarkeðjuna Topshop að því sem hún er í dag enda er hann einn þekktasti viðskiptamaður Bretlands. 






×