Enski boltinn

Eiður ekki með í dag - gleymdist að skrá hann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Nordic Photos / Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki með Fulham þegar að liðið mætir Bolton í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í dag.

Samkvæmt heimildum Vísis gleymdist að útvega Eiði Smára keppnisleyfi í enska bikarnum með Fulham í tæka tíð fyrir leikinn í dag.

Um mannleg mistök var að ræða á skrifstofu Fulham. Eiður mun þó geta spilað með Fulham í bikarnum síðar í vetur ef liðið kemst áfram í fjórðungsúrslitin í dag.

Þetta eru vitanlega mikil vonbrigði fyrir Eið sem átti góða innkomu fyrir Fulham gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í byrjun vikunnar. Enskir fjölmiðlar töldu líklegt að hann yrði í byrjunarliðinu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×