Lífið

Egill og Gurrý eignuðust stúlku í gær - MYND

Ellý Ármanns skrifar
Guðríður Jónsdóttir, Egill Einarsson og dóttir þeirra.
Guðríður Jónsdóttir, Egill Einarsson og dóttir þeirra.
Egill Einarsson og Gurrý Jónsdóttir eignuðust stúlku í gær, sunnudag.

Stúlkan fæddist viku fyrir settan fæðingardag en Gurrý var sett 21. júlí.

„Í gær klukkan 15:35 mætti þessi litla prinsessa á svæðið.

Hún lét aðeins hafa fyrir sér, en Gurrý rúllaði þessu upp þó þetta hafi tekið góðan tíma.

Hún var 12 merkur og 47 sentimetrar.

Erum í skýjunum foreldrarnir, þetta er ekkert eðlilega gaman!“ skrifaði Egill á Facebooksíðuna sína rétt í þessu með meðfylgjandi mynd af stúlkunni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×