Fótbolti

Ég er búinn að vera

Xavi skorar í leik í vetur.
Xavi skorar í leik í vetur. vísir/getty
Xavi viðurkennir að hann sé ekki lengur sami knattspyrnumaðurinn og hann var. Hann vill feta í fótspor Pep Guardiola og verða þjálfari.

„Dagar mínir sem knattspyrnumaður eru á enda. Það er klárt að ég er búinn að vera. Ég finn það á líkama mínum," sagði Xavi.

„Vonandi get ég fetað í fótspor Guardiola og orðið þjálfari. Ég vil helst fá að þjálfa hjá Barcelona. Hér er mitt heimili."

Guardiola tók við liði Barcelona og vann spænsku deildina þrisvar og Meistaradeildina tvisvar.

Xavi lagði landsliðsskóna á hilluna eftir vonbrigðin á HM síðasta sumar. Hann ætlaði upphaflega að hætta árið 2012 en landsliðsþjálfarinn, Vicente del Bosque, taldi honum hughvarf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×