Lífið

Ef María kemst áfram verður Ísland í úrslitum í 8. skiptið í röð

Birgir Olgeirsson skrifar
María Ólafsdóttir á blaðamannafundi í Vín.
María Ólafsdóttir á blaðamannafundi í Vín. Vísir/EPA
María Ólafsdóttir stígur á svið í seinni undanriðli söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, í Vín í Austurríki í kvöld. María flytur lagið Unbroken og verður tólfta á svið. María mun etja kappi við sautján þjóðir í kvöld en aðeins tíu þeirra komast í úrslitin sem fara fram á laugardag.

Ef María kemst áfram þá verður þá verður það í áttunda skiptið í röð sem Ísland fer upp úr undanriðlinum.

Það fyrirkomulag var tekið upp árið 2005 en þá sendi Ísland Selmu Björnsdóttur til Kænugarðs í Úkraínu með lagið If I Had Your Love. Ekki tókst henni að komast upp úr undanriðlinum.

Árið eftir sendu Íslendingar Silvíu Nótt, sem Ágústa Eva lék, með lagið Congratulations sem hlaut ekki náð fyrir augum Evrópu.

Árið 2007 var öllu tjaldað til og Eiríkur Hauksson fenginn til að koma Íslendingum í fyrsta skiptið upp úr undanriðlinum með rokk og róli sem nefndist Valentine Lost. Ekki dugði framlag keppunnar í það skiptið og virtust Íslendingar úrkula vonar um að komast einhverntímann upp úr feni undankvöldanna.

Árið 2008 var fyrirkomulaginu breytt og haldin tvö undankvöld í stað eins. Eurobandið mætti til leiks diskóslagarann This is my life árið 2008 og fór í úrslitin og hafa Íslendingar ekki litið til baka síðan.  Ísland hefur sjö ár í röð komist í úrslitin en miðað við spá veðbanka er ekki útlit fyrir annað en María Ólafsdóttir muni fara í úrslitin ár, sem yrði þá áttunda skiptið í röð.



  • 2005    Selma        If I Had Your Love     Komst ekki áfram
  • 2006    Silvia Night    Congratulations        Komst ekki áfram
  • 2007    Eiríkur Hauksson    Valentine Lost    Komst ekki áfram
  • 2008    Euroband    This Is My Life         Áfram
  • 2009    Yohanna    Is It True?        Áfram
  • 2010    Hera Björk    Je ne sais quoi        Áfram
  • 2011    Sjonni's Friends     Coming Home        Áfram
  • 2012    Greta Salóme & Jónsi    Never Forget    Áfram
  • 2013    Eyþór Ingi Gunnlaugsson    Ég á líf    Áfram
  • 2014    Pollapönk    No Prejudice        Áfram
  • 2015    María Ólafsdóttir    Unbroken    ?


Af þessu sjö skiptum sem Ísland hefur farið áfram hefur Ísland fjórum sinnum verið lesið upp síðast þegar tilkynnt er um hvaða þjóðir fara áfram og spurnig hvað gerist í kvöld. Á meðan beðið er eftir þeirri stundu er hægt að rifja þessi augnablik upp með því að horfa á þetta myndband.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×