Lífið

Ed Sheeran gæti gefið Courteney Cox og Johnny McDaid saman

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ed Sheeran er einn allra heitasti listamaðurinn í dag.
Ed Sheeran er einn allra heitasti listamaðurinn í dag. vísir/getty
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran mun að öllum líkindum gefa saman þau Courteney Cox og Johnny McDaid þegar parið gengur í það heilaga.

Sheeran kynnti þau fyrir hvort öðru á sínum tíma en það þekkja allir Courteney Cox úr gamanþáttunum Friends og Cougar Town en Johnny McDaid er í hljómsveitinni Snow Patrol.

„Þau hafa sagt að það yrði ótrúlega gaman og mjög viðeigandi ef Sheeran myndi gefa þau saman,“ segir heimildarmaður Daily Star.

„Hann hefur nú þegar lofað þeim að flytja nokkur lög í kirkjunni og því gæti vel verið að hann taki þetta alla leið.“


Tengdar fréttir

Rándýr dúett í Central Park um helgina

Chris Martin, söngvari Coldplay, stóð fyrir gríðarlega stórum góðgerðartónleikum um helgina í New York en tónleikarnir voru undir yfirskriftinni The Global Citizen Festival og hafa verið árlega síðan 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×