Formúla 1

Ecclestone heimtar meiri hávaða

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Luca di Montezemolo og Bernie Ecclestone stinga saman nefjum.
Luca di Montezemolo og Bernie Ecclestone stinga saman nefjum. Vísir/Getty
Bernie Ecclestone segir nýju vélarhljóði stríð á hendur. Ecclestone hefur frá upphafi verið mótfallinn því að skipta yfir í V6 vélar. Hann segir að bílarnir verði að fara að hljóma aftur eins og kappakstursbílar.

Ron Walker, stjórnarmaður í félaginu sem heldur ástralska kappakstursins hefur kvartað yfir málinu við Ecclestone. Þeir hafa hótað málssókn. Walker er ekki eini mótshaldarinn sem hefur haft samband við Ecclestone til að lýsa yfir óánægju sinni.

„Ég talaði við Luca di Montezemolo [framkvæmdastjóra Ferrari] rétt í þessu og Luca segir að hann hafi aldrei fengið eins marga tölvupósta til sín með kvörtunum sem segja að þetta sé ekki F1“ segir Bernie Eccelstone.

Ecclestone efast um að skipuleggjendur ástralska kappakstursins hafi mál í höndunum. En bendir á að það sé siðferðilega rangt gagnvart væntingum áhorfenda hversu hljóðlátar vélarnar eru.

Það gæti þurft nokkur mót til að leysa úr hávaðaskortinum samkvæmt Bernie Ecclestone. Hann bendir á að það geti orðið dýrt fyrir liðin að leysa ekki úr vandanum.

Liðin fá hluta af því sem keppnishaldarar borga til að fá að halda keppnir. Ron Walker hefur bent á að þeir muni borga minna á næsta ári ef ekki verði búið að leysa vandann. Þá munu liðinn fá minna fyrir þáttökuna.  


Tengdar fréttir

Breyttar aðstæður í Formúlu 1

Mestu reglubreytingar innan Formúlu 1 í aldarfjórðung hafa tekið gildi. Þær munu bylta ýmsu varðandi uppbyggingu Formúlu 1 bíla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×