Lífið

EA Fitness: Brjóstaæfingar með sterkustu konu Íslands

Vísir sýnir í dag fimmta þáttinn af EA Fitness sem er á dagskrá Vísis á mánudögum.



Í þessari þáttaröð fáum við að fylgja þjálfurunum  Elmu  og  Antoni  eftir en þau fjalla um líkamsrækt, næringu og heilbrigðan lífsstíl.  



Í þessum fimmta þætti fáum við að gera brjóstaæfingar með sterkustu konu Íslands og einnig er farið yfir æfingar á meðgöngu með þjálfaranum Björku Varðardóttur.

Einnig er Einarshornið alltaf á sínum stað.

Skemmtilegur þáttur fyrir alla sem hafa áhuga á heilbrigðum og skemmtilegum lífsstíl. 

Elma Grettisdóttir er með menntun frá World Class-skólanum og í Stott Pilates. Hún hefur unnið sem einkaþjálfari í mörg ár og er þjálfunin ekki bara vinna fyrir henni heldur einnig áhugamál. Hún býður uppá einkaþjálfun í World Class sem og fjarþjálfun.  



Anton Rúnarsson hefur unnið sem einka- og fjarþjálfari í meira en tíu ár. „Að aðstoða fólk við að koma sér í form og læra að halda sér í formi er það sem ég geri, megrun er ekki í mínum orðaforða heldur lífsstíll. Að endurstilla hugarfarið til að lifa heilbrigðum lífsstíl,“ segir Anton. Hann er menntaður einkaþjálfari frá World Class-skólanum.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×