Innlent

Dýrkeypt djamm Verzlinga

Jakob Bjarnar skrifar
Hópurinn var á leiðinni til Flórens í ferð í listasöguáfanga.
Hópurinn var á leiðinni til Flórens í ferð í listasöguáfanga. visir/ap/hörður
Sextán drengir hafa verið reknir úr Verzlunarskólanum. Vísir greindi frá málinu í dag en ástæða brottreksturs er sú að drengirnir voru staðnir að drykkju í húsakynnum skólans, sem þykir alvarlegt brot á reglum skólans.

Forsaga málsins er að hópur nemenda við Verzlunarskólann voru að fara til Ítalíu í námsferð sem tengdist listfræðinámi nemendanna. Samkvæmt heimildum Vísis voru nemendurnir hátt uppi og hressir vegna fyrirhugaðrar ferðar; skemmtu sér vel í kjallara skólans áður en farið var út á Leifsstöð. Þeir hringdu meðal annars í MR-útvarpið, en þar stóð yfir svokölluð árshátíðarvika, og greindu kollegum sínum í stétt framhaldsskólanema frá ævintýrum sínum. Og tilkynntu í útvarpsviðtalinu að þeir ætluðu að vera flottir á því og panta sér Hummer-limmósínu til að flytja hluta hópsins út á Leifsstöð. Sem þeir og gerðu.

Þegar þeir svo mættu í skólann í gær var þeim tilkynnt að þeim hefði verið vísað úr skólanum vegna áðurnefnds brots. Um er að ræða tímabundin brottvikning en í næstu viku munu þeir svo funda með skólastjórnendum, þar sem hlustað verður á málsbætur þeirra, eigi þeir sér einhverjar.



Uppfært kl. 18.00

Í fyrri útgáfu fréttarinnar voru birtar myndir af nemendunum fyrir framan fyrrnefnda limmósínu. Myndirnar voru birtar í gegnum Facebook-síðu ICELIMO en hafa nú verið fjarlægðar þaðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×